Gestur Sjóarans er sjómaðurinn, kennarinn og fyrrum fangavörðurinn Böðvar Þorsteinsson.
Böðvar sigldi bæði á frakt- og fiskiskipum en í landi starfaði hann sem bæði kennari og um stund sem fangavörður á Litla-Hrauni. Böðvar á langan feril til sjós að baki og segir meðal annars frá því að hann hafi misst félaga þegar Dísarfellið sökk. Böðvar hefur sjálfur lent í háska en ávallt sloppið og greinir hann frá því í hlaðvarpinu.
„Maður hefur oft lent í óhöppum og sloppið og hugsað svo eftir á, mikið var ég heppinn þarna. Ég hef til dæmis dottið af millidekki í lest á fragtskipi og endaði niður í botni og einhvern veginn kom ég niður einhvern veginn á lappirnar og ég stóð upp. Ég veit ekki enn þann dag í dag hvernig ég slapp með það en ég hugsaði á leiðinni „Nú er það búið.“
Þáttinn í heild sinni er hægt að horfa á hérna