- Auglýsing -
Gestur Reynis Traustasonar í Mannlífinu að þessu sinni er Jón Birgir Pétursson, fyrrum blaðamaður og ritstjóri. Hann hóf feril sinn sem íþróttafréttaritari en kallið kom þegar hann starfaði við að framleiða súrefni hjá AGA.
Jón þarf ekki að hugsa sig tvisvar um þegar hann er spurður út í hvaða fréttamál sé honum eftirminnilegast en það var þegar gosið í Vestmannaeyjum hófst árið 1973. Hann var vakinn um miðja nótt þar sem hann var beðinn að hafa samband við mann sem tilkynnti honum að Eyjar væru að springa í loft upp!