Nú er röðin komin að Vinstri grænum í Brúðuleikhúsi Mannlífs. Ekki missa af þessu! Um er að ræða efni sem er frumsamið og frumflutt af atvinnufólki. Leynd er yfir aðstandendum verkefnisins fyrsta kastið.
Brúðurnar sem koma fram eru sérhannaðar af þessu tilefni og með hliðsjón af þeim sem þær túlka. Myndskeið verða birt á næstunni með reglubundnu millibili með öðrum helstu forkólfum íslenskra stjórnmála.
Þetta er sjöundi þáttur en þegar hafa birst þættir þar sem Bjarni Benediktsson og Sjálfstæðisflokkurinn, Inga Sæland og Flokkur Fólksins, Píratar, Framsóknarflokkurinn, Samfylkingin og Sósílistaflokkurinn komu við sögu. Nú er röðin komin að Vinstri grænum: Gjörið svo vel.