Smelltu hér til að sjá þáttinn í heild sinni.
Vilbergur Magni Óskarsson var áður skólastjóri Skipstjórnarskóla Tækniskólans, sem áður nefndist Stýrimannaskólinn, en starfar í dag þar sem kennari. Hann starfaði áður á fiskiskipum, varðskipunum og sem sigmaður í þyrlu Landhelgisgæslunnar.
Vilbergur ólst upp á Eyrarbakka þar sem neistinn til að fara til sjós og gerast stýrimaður og seinna skipherra kviknaði.
Í þessum fyrri hluta viðtalsins segir Vilbergur meðal annars frá því þegar hann var að störfum fyrir Landhelgisgæsluna vegna leiðtogafundarins 1986, þegar Mikhail Gorbachev og Ronald Reagan funduðu í Höfða. Varðskipið Óðinn var þá staðsett við Höfða en hann var hinsvegar á varðskipinu Tý sem hafði það hlutverk að vakta umferð um höfnina. Hann vaknaði við það að Týr keyrir utan í skipið Sirius sem var í eigu Greenpeace en skipsmenn á Óðni fóru svo um borð til að koma skipinu frá.
Seinni hluti viðtalsins birtist svo að viku liðinni. Þar segir meðal annars frá því þegar þyrla Gæslunnar kom á ögurstundu að þar sem ferjuflugmaður nauðlenti flugvél sinni á Faxaflóa.