Nú er röðin komin að Sósíalistaflokknum í Brúðuleikhúsi Mannlífs. Gunnar Smári fer á kostum í Moskvu og á Íslandi. Ekki missa af þessu! Um er að ræða efni sem er frumsamið og frumflutt af atvinnufólki. Leynd er yfir aðstandendum verkefnisins fyrsta kastið.
Brúðurnar sem koma fram eru sérhannaðar af þessu tilefni og með hliðsjón af þeim sem þær túlka. Myndskeið verða birt á næstunni með reglubundnu millibili með öðrum helstu forkólfum íslenskra stjórnmála.
Þetta er sjötti þáttur en þegar hafa birst þættir þar sem Bjarni Benediktsson og Sjálfstæðisflokkurinn, Inga Sæland og Flokkur Fólksins, Píratar, Framsóknarflokkurinn og Samfylkingin komu við sögu. Nú er röðin komin að Sósíalistum: Gjörið svo vel.