- Auglýsing -
Leikkonan Kirsten Dunst segir einn framleiðanda Spider-Man hafa reynt að sannfæra hana um að láta laga á sér tennurnar fyrir tökur myndarinnar. Dunst neitaði og segir það aldrei hafa komið til greina að láta breyta tönnum sínum.
Dunst sagði frá þessu í viðtali við ástralska miðilinn News. Hún segir viðkomandi hafa reynt á lúmskan hátt að fá hana til að fá sér „fullkomnar Barbie-tennur“ eins og hún orðar það. Hún nafngreindi þó ekki aðilann sem stakk upp á tannviðgerðum við hana.
Dunst fór með hlutverk Mary Jane Watson í þremur kvikmyndunum um Spider-Man, á árunum 2002 til 2007. Þar lék hún á móti Tobey Maguire.