Tónlistarkonan Hildur Kristín Stefánsdóttir reynir hvað hún getur að leita umhverfisvænna lausna þegar kemur að tísku.
Hún segir frá því á Twitter að það sé vel hægt að vera umhverfisvæna poppstjarna.
„Skemmtilegt að segja frá því að það er hægt að vera umhverfisvæn poppstjarna! Öll fötin sem ég notaði í myndatöku fyrir nýtt lag og plötu eru vintage eða af fatamarkaði og kostuðu samtals undir 7000 kr. Fæ líka oft lánað frá fatahönnuðum, mjög sniðugt fyrir mig og hönnuðinn,“ skrifar Hildur á Twitter og deilir þremur myndum af sér í mismunandi klæðnaði.
Myndirnar tók Birta Rán.
Skemmtilegt að segja frá því að það er hægt að vera umhverfisvæn poppstjarna!♻️ Öll fötin sem ég notaði í myndatöku fyrir nýtt lag og plötu eru vintage eða af fatamarkaði og kostuðu samtals undir 7000 kr. Fæ líka oft lánað frá fatahönnuðum, mjög sniðugt fyrir mig og hönnuðinn ✨ pic.twitter.com/PPufhnAb8q
— Hildur (@hihildur) July 1, 2019