Hjördís Dögg Grímarsdóttir er þekkt fyrir góðar og flottar köku- og mataruppskriftir og hefur í rúman áratug rekið síðuna mömmur.is sem er með mörg þúsund fylgjendur á Facebook og Instagram.
Þessi ljúfa og jákvæða Skagakona er í forsíðuviðtali jólablaðs Vikunnar sem komið er á næsta sölustað og fæst einnig í áskrift. Ekki nóg með það, heldur sá Hjördís um að elda jólamatinn fyrir okkur og deilir uppskriftunum með lesendum Vikunnar.
Stundum kölluð „húsmóðir dauðans“
Í huga Hjördísar var Akranes alheimurinn en það átti eftir að breytast þegar Degi var boðinn samningur hjá Körfuknattleiksfélagi Grindavíkur. „Hann sló til og við fluttum í þennan yndislega bæ og bjuggum þar í sex frábær ár. Það er eitt af þeim stóru gæfusporum sem við höfum tekið. Þetta þroskaði mig á svo marga vegu og ég kynntist líka yndislegu fólki sem ég er enn í sambandi við.“
Hjördís valdi sér heimilisfræði í Kennaraháskólanum. „Þar göldruðum við fram hverja veisluna af annarri og lærðum að leggja á borð og annað. Ég færði þessa reynslu inn á heimilið mitt, en við vorum bara tvö, bakaði brauð með öllum máltíðum og prófaði nýja rétti oft í viku. Þarna starfaði ég sem kennari í Grunnskólanum í Grindavík og var dugleg að taka bakkelsi með mér og bjóða öðrum. Stundum var sagt að ég væri „húsmóðir dauðans“.“
Lestu viðtalið við Hjördísi í heild sinni í jólablaði Vikunnar.

Mynd / Hallur Karlsson

Mynd / Hallur Karlsson
Myndir / Hallur Karlsson og úr einkasafni
Förðun / Hugrún Haraldsdóttir
Kjóll / KRÓSK by Kristín Ósk