- Auglýsing -
Að festa kaup á fík sem hentar við öll tækifæri er sannarlega hægt að kalla góð kaup. Hin klassíska hvíta skyrta fellur fullkomlega undir það og er ein af þeim fíkum sem er algjörlega ómissandi í fataskápinn. Hvíta skyrtan er tákn sjálfstæðis, auðæfa og glæsileika. Það kemur því ekki á óvart að hún verði fyrir valinu hjá mörgum konum við hin ýmsu tækifæri, til dæmis á mikilvægum dögum starfsferilsins.
Ýmsir notkunarmöguleikar
Við höfum sjálfsagt séð óteljandi útgáfur af því hvernig hvíta skyrtan er notuð. Margar tískufyrirmyndir hafa í gegnum árin notað hvítu skyrtuna sem „go to-flíkina“ þar sem það er svo auðvelt að klæðast henni á mismunandi vegu.
Texti / Arna Atladóttir (Instagram @stilisti_maelir_med)