Ný og spennandi Vika kemur í verslanir í dag. Harpa Stefánsdóttir prýðir forsíðuna.
Minningin um látna systur veitir Hörpu Stefánsdóttur innblástur og hvatningu til að berjast fyrir réttindum dýra og á móti verksmiðjubúskap. Hún heldur meðal annars úti vefsíðunni www.eldhusatlasinn.is, þar sem hún birtir uppskriftir að gómsætum grænmetisréttum með boðskap í kaupbæti.
Harpa er í forsíðuviðtali við Vikuna og segir þar á einlægan hátt frá sambandi sínu við stjúpföður sinn sem hún missti nýlega, systur sinni og lífsstíl sínum.
Í blaðinu er svo litið á nokkrar góðar aðferðir til að forðast ótímabær ellimerki og hugsa vel um húðina. Allir vilja eldast með reisn og aldrei hafa fleiri leiðir verið í boði til að það megi verða.
Fyrsta samkynhneigða kirkjubrúðkaupið var haldið á Englandi árið 1834 og Vikan segir frá því og konunum sem þá gengu í hjónaband.
Margt fleira fróðlegt og skemmtilegt er að finna í nýjusta tölublaði Vikunnar.
Tryggðu þér áskrift að Vikunni í vefverslun