- Auglýsing -
Einn stærsti tískuviðburður ársins, The Met Gala, er hafinn og fer fram í nótt í New York. Tískuunnendur bíða alltaf spenntir eftir þessum viðburði enda er tískan á rauða dreglinum alltaf veisla. Hér kemur lítið brot af því besta og áhugaverðasta sem hefur sést á rauða dreglinum í kvöld.
Harry Styles klæðist áhugaverðu dressi, svo ekki sé meira sagt. Tískuhús Gucci á heiðurinn að þessu.
Kris Jenner er óþekkjanleg á rauða dreglinum.
Anna Wintour flott að vanda.
- Auglýsing -
Miley Cyrus flott.
- Auglýsing -
Emily Blunt er gyllt frá toppi til táar.
Lady Gaga er ekki nýgræðingur þegar kemur að rauða dreglinum.
Olsen-tvíburarnir mættu í stíl.
Jared Leto vekur lukku, eins og vanalega.
Florence Welch í Gucci.
Celine Dion er ekki að grínast.
Amber Valletta í áhugaverðu dressi frá Saint Laurent.