Virkilega góð kaka með granatepla- og appelsínusírópi sem sló í gegn þegar við bökuðum hana í tilraunaeldhúsi Gestgjafans.
Appelsínukaka
150 g púðursykur
4 egg
50 g brauðrasp
100 g hveiti
2 tsk. lyftiduft
börkur af 1 appelsínu
200 ml jurtaolía
3 msk. granatepli
granatepla- og appelsínusíróp
Hitið ofninn í 180°C. Smyrjið 24 cm form. Hrærið púðursykur og egg saman þar til blandan er létt og ljós. Bætið restinni af hráefninu saman við, þó ekki granateplum og sírópi, með sleif þar til allt er samlagað. Hellið deiginu í formið og bakið í 30 mínútur eða þar til prjónn kemur hreinn úr miðju kökunnar. Passið að baka hana ekki of lengi. Hellið sírópinu yfir og stráið granateplafræjunum ofan á.
GRANATEPLA- OG APPELSÍNUSÍRÓP
safi úr 1 appelsínu
2 dl granateplasafi
2 msk. sykur
Sjóðið allt saman þar til vökvinn hefur minnkað um helming.
Umsjón / Katrín Rut Bessadóttir
Mynd / Hákon Davíð Björnsson
Stílisti / Hanna Ingibjörg Arnarsdóttir