Dásamlega góð kaka sem er tilvalin um helgina.
Konfektdraumur
fyrir 10
4 eggjahvítur
200 g flórsykur
2 msk. kakó
Hitið ofninn í 150°C. Þeytið eggjahvítur í hreinni skál þar til þær fara að freyða. Bætið flórsykri út í smátt og smátt og þeytið hann saman við þar til hvíturnar eru orðnar stífar eða í u.þ.b. 3-5 mín. Sigtið kakó út í og blandið saman við með sleikju. Setjið bökunarpappír í botninn á þremur 22 cm smelluformum eða teiknið 22 cm hringi á þrjár arkir af bökunarpappír. Smyrjið formið aðeins innan með olíu. Skiptið deiginu í formin eða á pappírinn. Bakið botnana í miðjum ofni í 40 mín. Losið botnana varlega úr formunum.
Kaffikrem:
1 msk. skyndikaffiduft
2 msk. sjóðandi vatn
100 g smjör, mjúkt
150 g flórsykur
Leysið skyndikaffi upp í heitu vatni og kælið aðeins. Hrærið smjör, kaffi og flórsykur vel saman.
Súkkulaðikrem:
200 súkkulaði, saxað
1 ½ dl rjómi
Setjið súkkulaði í skál. Hitið rjóma og hellið yfir súkkulaðið. Látið standa í nokkrar mínútur og hrærið síðan vel saman. Geymið.
Kremið er frekar þunnt og svolítið girnilegt þannig. Ef þið viljið hafa kremið þykkara er gott stinga því í kæli það verður þykkara á u.þ.b.20-30 mín.