Ákveðnar tegundir sumarblóma eru ekki bara til prýðis, þær eru ætar og bragðgóðar líka eins og þessar uppskriftir sanna.
10-12 stk
150 g hveiti
¼ tsk. salt
1 ½ tsk. lyftiduft
2 tsk vanilluduft eða dropar
3 dl mjólk
3 egg
3 msk. smjör, bráðið
æt blóm, eins og fjólur og morgunfrúr
Blandið þurrrefnum saman og hellið svo mjólkinni saman við og hrærið í kekkjalaust deig. Bætið eggjunum út í deigið og hrærið áfram. Setjið smjörið út í síðast. Prófið fyrst að baka eina pönnuköku til að athuga þykkt og hitastig. Pönnukökurnar eiga að vera þunnar og bakast við meðalhita, stillið á aðeins minni hita en þið eruð vön að gera. Hafið blómin tilbúin, setjið deig á pönnuna og á meðan pönnukakan bakast öðrum megin, raðið blómunum á óbökuðu hliðina og þrýstið léttilega á þau og snúið svo kökunni við. Gott að bera pönnukökurnar fram með sneiddum banönum, jarðarberjum, rjóma, nutella eða súkkulaðisósu.
Umsjón / Bergþóra Jónsdóttir og Nanna Teitsdóttir
Mynd / Hallur Karlsson