Það eru eflaust ekki margir sem nota grasker reglulega í matargerð, þessi súpa gæti hinsvegar breytt því. Þrælholl og bragðgóð súpa sem kemur á óvart!
1 grasker ( butternut squash), um 1 kg, afhýtt og fræhreinsað
2 msk ólífuolía
1 msk smjör
2 laukar, saxaðir
1 hvítlauksrif, skorið þunnt
2 mildir rauðir chili, fræhreinsaðir og smátt saxaðir
850ml heitur grænmetiskraftur
4 msk sýrður rjómi
Aðferð
Hitið ofninn í 200C/180C á blæstri.
Skerið graskerið í stóra teninga(um það bil 4 cm).
Snöggsteikið á pönnu og setjið í ofn í um 30 mínútur með 1 msk af ólífuolíu þar til graskerið er orðið mjúkt.
Á meðan graskerið eldast, bræðið smjörið ásamt 1 msk ólífuolíu sem eftir er í stórum potti og bætið síðan lauknum, hvítlauksrifinu og þremur fjórðu af chillíinu út í. Lokið og steikið við mjög lágan hita í 15-20 mínútur þar til laukurinn er orðinn mjúkur.
Maukið graskerið og hellið á pönnuna, bætið heita grænmetiskraftinum og sýrða rjómanum út í og þeytið síðan með töfrasprota(matvinnsluvél) þar til súpan er orðin fín og mjúk og án kekkja.
Blandið hráefnum úr potti við súpuna, notið salt og pipar eftir smekk.
Berið fram í skálum með einni matskeið af sýrðum rjóma ofan á og fersku koríander