Bragðmikil krydd, kryddjurtir og fjölbreytt úrval af sósum einkenna grillmat frá Asíu en sósurnar í asískri matargerð eru fremur einfaldar og fljótlegar. Hér grilluðum við risarækjur sem við bárum fram með fersku salati og geggjaðri sósu.
Grillaðar risarækjur með salati
fyrir 4
600 g risarækjur
2 msk. olía
¼ tsk. chili-pipar
½ tsk. salt
1 salathöfuð
1 mangó, afhýtt og skorið í bita
2 lárperur, afhýddar og skornar í bita
4 stilkar vorlaukur, saxaðir
hnefafylli kóríander, saxaður
Þræðið risarækjur á spjót, penslið þær með olíu og sáldrið chili-pipar á þær. Grillið þær á heitu grilli, stráið salti yfir. Setjið salatið á fat og dreifið mangói, lárperu, vorlauk og kóríander ofan á. Setjið grillspjótinofan á. Hrærið allt saman sem fer í sósuna og hellið yfir.
Sósa
3 msk. sæt chili-sósa
2 msk. límónusafi
1 msk. sesamolía
Umsjón / Sigríður Björk Bragadóttir og Hanna Ingibjörg Arnarsdóttir
Mynd / Ernir Eyjólfsson