Nýtt tölublað af Vín og mat er komið út. Þar má finna uppskriftir að ýmsum girnilegum réttum og uppskriftum sem smellpassa árstíðinni. Forsíðuviðtalið er að þessu sinni við Sindra Guðbrand en hann var valinn kokkur ársins 2023.
Hindberjamús
2 x 250 g fitulítill rjómaostur
50 g flórsykur
kreista eða tvær af sítrónusafa
250 g pakki af frosnum hindberjum
SKREF 1
Hellið rjómaostinum og sykrinum í stóra skál, kreistið nokkra dropa af sítrónusafa út í og þeytið með trésleif þar til blandan er orðin rjómakennd (þú getur gert þetta klukkutíma eða tveimur áður en þú berð eftirrétinn fram og geymt í kæli).
SKREF 2
Hrærið hindberjum varlega saman við þar til þau byrja að brotna í sundur og blandan er bleik röndótt; smakkið til og bætið við smá sítrónusafa ef vill. Hellið í glös, skreytið með dökku súkkulaði eða ferskum hindberjum og berið fram.