Mörgum finnst maturinn bragðast betur úti undir berum himni og nota hvert tækifæri til að taka með sér nesti til að snæða úti í guðsgrænni náttúrunni. Þessi er ómissandi í nestiskörfuna.
Klúbbasamloka
brauð eftir smekk
smjör eða rjómaostur
spægipylsa
eplasneiðar
ostsneiðar
klettakál
Smyrjið brauð og leggið saman með spægipylsu, eplasneiðum, ostsneiðum og klettakáli. Við notuðum þunnbrauð, kringlóttar kökur sem fást frosnar og gerðum þriggja laga samloku.
Samlokur eru alltaf hentugur matur í ferðalagið. Það má gera góða samloku frábæra með því að mala pipar yfir í lokin eða saxa ferskar kryddjurtir. Kryddaður rjómaostur, ólífur, laukur eða kryddmauk gera venjulega samloku að sælkeramat.
Texti / Sigríður Björk Bragadóttir
Myndir / Karl Petersson
Stílisti / Ólöf Jakobína Ernudóttir