Þessi kaka er frábær þegar henda skal í eitthvað gómsætt með stuttum fyrirvara. Marens sem slíkur stendur alltaf fyrir sínu en þegar Snickers-krem og rjómi bætist við erum við með kombó sem getur ekki klikkað.
Snickers-terta
8-10 sneiðar
Marensbotnar
5 eggjahvítur
4 dl púðursykur
Stillið ofninn á 130°C. Stífþeytið eggjahvíturnar og púðursykurinn þar til blandan er það stíf að hún hreyfist ekki þegar skálinni er hvolft. Teiknið tvo jafnstóra hringi á bökunarpappír (u.þ.b. 22 cm í þvermál), jafnið deiginu á hringina og bakið í 1 klst.
Fylling
5 dl rjómi, þeyttur
3 Snickers-súkkulaðistykki skorin í litla bita
Blandið þeyttum rjóma og Snickersbitum saman og setjið ofan á annan marensbotninn. Setjið hinn botninn ofan á dreifið kreminu yfir tertuna.
Krem
3 eggjarauður
2 msk. flórsykur
50 g smjör, brætt
2 stk. Snickers, skorin í bita
Þeytið eggjarauður og flórsykur saman þar til blandan er létt og ljós. Bræðið smjör og Snickers varlega saman og blandið út í eggjarauðublönduna.
Umsjón / Kristín Dröfn Einarsdóttir
Stílisti / Ólöf Jakóbína Ernudóttir
Mynd / Rakel Ósk Sigurðardóttir