- Auglýsing -
Dill er frábær kryddjurt sem getur dafnað mjög vel í íslenskum görðum. Ferskt dill er alls ekki það sama og þurrkað dill og þó að fólk sé ekki hrifið af þurrkuðu dilli getur allt annað verið uppi á teningnum þegar kemur að því ferska. Við mælum svo sannarlega með að matgæðingar komi sér upp dilli í kryddjurtabeðinu eða í potti á svölunum. Það passar sérstaklega vel með kartöflum, fiski, í salöt og kaldar sósur.