- Auglýsing -
Kúrbítur með ítalskri kjötsósu
Hráefni:
4 kúrbítar
500 gr nautahakk
1 laukur (saxaður)
½ græn paprika (söxuð)
1 dós tómat passata
2-3 hvítlauksrif (smátt söxuð)
parmesan ostur (rifið yfir í lokinn)
Salt og pipar eftir smekk
Aðferð:
1. Setjið olíu á pönnu og steikið lauk, paprikku og hvítlauk við vægan hita þar til grænmetið er orðið mjúkt.
2. Bætið hakkinu á pönnuna og steikið þar til hakkið hefur brúnast, hellið þá passata út á.
3. Skerið kúrbítana í sneiðar og leggiðí eldfast mót. Setjið kjötsósuna út á og rífið parmesan ost yfir.
4. Bakið í ofni við 200 gráður í 15-20 mínútur.