Hér höfum við tekið saman nokkrar uppskriftir að góðu meðlæti sem væri tilvalið að bjóða upp á með jólamatnum. Smelltu á hlekkina fyrir neðan til að nálgast uppskriftirnar.
Þessi réttur er einstaklega góður og passar sérlega vel með lambalæri. Svolítið örðuvísi og spennandi meðlæti sem gaman er að bera fram.
Kartöflusalöt eru alltaf klassísk og það er gaman að breyta aðeins til og prófa eitthvað aðeins öðruvísi. Þetta sætkartöflusalat með rúsínum er spennandi.
Ofnbakað rósakál og sætar kartöflur
Rósakál og sætar kartöflur er blanda sem getur ekki klikkað. Við mælum hiklaust með þessari uppskrift.
Bakaðar gulrætur með parmesanosti og steinselju
Rétt meðlæti er oft það sem gerir máltíðina að sælkeramat. Þessar bökuðu gulrætur taka jólamatinn upp á næsta stig.
Bakað grasker með jógúrt og kóríander
Þessi grænmetisréttur getur staðið einn og sér sem ljúffengur grænmetisréttur en virkar einnig vel sem meðlæti með ljósu kjöti.
Þetta jólalega rauðrófusalat passar einstaklega vel á jólaborðið. Ekki bara bragðgott heldur líka dásamlega fallegt og girnilegt.