- Auglýsing -
Kjúklingur með rjómalagaðri Mexíkó-sósu
Aðferð:
4 stk. kjúklingabringur
1 stk. Mexíkó-ostur
190 ml rautt pestó
500 ml matreiðslurjómi
Aðferð:
Brúnið kjúklingabringurnar á hvorri hlið á pönnu, kryddið með salti og pipar og leggið til hliðar í eldfast mót.
Hitið í potti matreiðslurjóma og Mexíkó-ost.
Hrærið þar til osturinn hefur bráðnað og bætið þá við rauða pestóinu.
Hellið Mexíkó-sósunni yfir bringurnar í ofnfasta mótinu og látið inn í 180 °C heitan ofn í um 20 mínútur
Berið fram með hrísgrjónum, kartöflum eða því meðlæti sem ykkur þykir best.