Brauðtertur eiga hug okkar allan þessa dagana enda fátt skemmtilegra en að henda í eins slíka til hátíðabrigða. Hér ákváðum við að skella í eina sem allir geta gert, byrjendur jafnt sem lengra komnir, en þó slær hún ekkert af í bragði. Brauðtertan hentar líka vel fyrir þá sem borða ekki kjöt eða fisk.
Brauðterta með eggjasalati og grófu sinnepi
Salat
15 harðsoðin egg
300 g majónes
100 g grísk jógúrt
3 skalotlaukar, fínt skornir
½ græn paprika, skorin smátt
1 ½ msk. steinselja
1 msk. gróft dijon-sinnep
2 msk. sítrónusafi
½ -1 tsk. sjávarsalt
½ tsk. nýmalaður svartur pipar
Blandið öllu hráefninu saman í skál og bragðbætið með salti og pipar.
Brauðterta
1 rúllutertubrauð, gróft eða fínt
½ dl grísk jógúrt
1 ½ dl majónes
1 tsk. sítrónusafi
eggjasalat, uppskrift hér að ofan
Rúllið brauðinu út, smyrjið það allt með eggjasalatinu og rúllið saman. Leggið rúllutertuna varlega á fat eða bretti. Blandið saman sýrðum rjóma, majónesi og sítrónusafa. Smyrjið rúllutertuna á öllum hliðum með blöndunni.
Til skreytingar
salat að eigin vali, fallegt að nota dökkt salat
sítrónusneiðar
agúrkusneiðar
radísusneiðar
graslaukur
steinselja
blæjuber, skorin í sneiðar
rauð vínber, skorin í sneiðar
granateplafræ
Raðið grænmetinu á brauðtertuna eftir smekk og um að gera að láta hugmyndaflugið ráða ferðinni.
Matreiðsla / Folda Guðlaugsdóttir
Stílisering og ritstjórn / Hanna Ingibjörg Arnarsdóttir
Myndataka/ Hákon Davíð Björnsson
Klipping / Hákon Davíð Björnsson