- Auglýsing -
Old Fashioned
1 drykkur
1 tsk. fínmalaður sykur eða 1 sykurmoli
4-6 dropar (2 slettur) af angostura bitters
60 ml viskí eða bourbon
ísmolar
1 lengja af appelsínuberki, til skrauts
Takið fram viskíglas og sáldrið sykrinum í botninn. Slettið bitters úr flöskunni yfir sykurinn ásamt nokkrum dropum af vatni. Hellið viskíinu (eða bourboni) yfir og hrærið vel til að leysa upp sykurinn. Setjið ísmola í glasið og hrærið með skeið til að kæla drykkinn. Snúið upp á appelsínubörkinn yfir glasinu til að ögn af olíu úr berkinum fari ofan í glasið, skreytið með appelsínuberkinum og berið fram.