
Rannsóknir og vöktun á lundastofninum sýna að lunda hefur fækkað mikið við Íslandsstrendur síðustu 30 ár en greint er frá því í tilkynningu frá yfirvöldum.
Af þeim ástæðum biðla Náttúruverndarstofnun og umhverfis- orku- og loftslagsráðuneytið til veiðimanna og veitingageirans að gæta hófs við lundaveiðar og sölu á lundakjöti.
Við gerð stjórnunar- og verndaráætlunar fyrir lundastofninn fékk Náttúrverndarstofnun, áður Umhverfisstofnun, tvo óháða sérfræðinga, þá Dr. Fred A. Johnson og Dr. Carl Walters, til að rýna gögn Náttúrustofu Suðurlands og hugsanleg áhrif veiða á lundastofninn.
„Helstu niðurstöður eru þær að langtímafækkun lundastofnsins á Íslandi sé líklega vegna uppsafnaðra áhrifa veiða og óhagstæðra umhverfisaðstæðna, til að mynda hás sjávarhita. Hlýskeið í Atlantshafi síðustu þrjá áratugi hefur valdið því að minna framboð er af helstu fæðu lundans. Niðurstöður þeirra Johnson og Walters eru að áframhaldandi veiðar, sambærilegum þeim sem hafa áður verið, séu líklegar til að valda frekari rýrnun stofnsins,“ segir í tilkynningunni.
Þá segir einnig að stór hluti af lundaveiðiafla hvers árs sé seldur til veitingahúsa og því eru veiðimenn hvattir til að gæta hófs við veiðar. Biðlað er sömuleiðis til veitingahúsa að skoða til hlítar hvort lundi eigi heima á þeirra matseðli í ljósi þess hve stofninn er viðkvæmur og veiðar úr honum geti því ekki talist sjálfbærar.

Komment