1
Innlent

Mollý nú löglegt á Íslandi

2
Minning

Margrét Jónsdóttir er fallin frá

3
Pólitík

„Ég þurfti að samþykkja hana á sínum tíma með æluna í hálsinum“

4
Heimur

Paola Márquez látin aðeins 30 ára gömul

5
Innlent

Fundu rúma milljón í reiðufé í bíl

6
Heimur

Ferðamaður lést á Kanarí

7
Fólk

Selja sveitasetur á höfuðborgarsvæðinu

8
Innlent

Innkalla hættulegar bílstólafestingar

9
Fólk

Draumaeinbýli í miðbænum til sölu

10
Innlent

Hundar halda áfram að bíta fólk í Reykjavík

Til baka

Lundastofninn í hættu

Biðla til veiðimanna og veitingastaða að hætta veiða og selja fuglinn

Jóhann Páll Jóhannsson
Jóhann Páll Jóhannsson er umhverfis-, orku- og loftslagsráðherraBiðlar til veiðimanna og veitingastaða.
Mynd: Stjórnarráðið

Rannsóknir og vöktun á lundastofninum sýna að lunda hefur fækkað mikið við Íslandsstrendur síðustu 30 ár en greint er frá því í tilkynningu frá yfirvöldum.

Af þeim ástæðum biðla Náttúruverndarstofnun og umhverfis- orku- og loftslagsráðuneytið til veiðimanna og veitingageirans að gæta hófs við lundaveiðar og sölu á lundakjöti.

Við gerð stjórnunar- og verndaráætlunar fyrir lundastofninn fékk Náttúrverndarstofnun, áður Umhverfisstofnun, tvo óháða sérfræðinga, þá Dr. Fred A. Johnson og Dr. Carl Walters, til að rýna gögn Náttúrustofu Suðurlands og hugsanleg áhrif veiða á lundastofninn.

„Helstu niðurstöður eru þær að langtímafækkun lundastofnsins á Íslandi sé líklega vegna uppsafnaðra áhrifa veiða og óhagstæðra umhverfisaðstæðna, til að mynda hás sjávarhita. Hlýskeið í Atlantshafi síðustu þrjá áratugi hefur valdið því að minna framboð er af helstu fæðu lundans. Niðurstöður þeirra Johnson og Walters eru að áframhaldandi veiðar, sambærilegum þeim sem hafa áður verið, séu líklegar til að valda frekari rýrnun stofnsins,“ segir í tilkynningunni.

Þá segir einnig að stór hluti af lundaveiðiafla hvers árs sé seldur til veitingahúsa og því eru veiðimenn hvattir til að gæta hófs við veiðar. Biðlað er sömuleiðis til veitingahúsa að skoða til hlítar hvort lundi eigi heima á þeirra matseðli í ljósi þess hve stofninn er viðkvæmur og veiðar úr honum geti því ekki talist sjálfbærar.

Lundar í Vigur
Lundar í VigurÓháðir sérfræðingar kíktu á gögnin.
Mynd: Stjórnarráðið/Hugi Ólafsson
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Trump viðurkennir munnsöfnuð
Heimur

Trump viðurkennir munnsöfnuð

„Ertu fokking brjálaður?“
Fundaði með Evrópumálaráðherra Slóvakíu
Pólitík

Fundaði með Evrópumálaráðherra Slóvakíu

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar vitna
Innlent

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar vitna

Finni ákærður fyrir 364 kynferðisbrot gegn börnum
Heimur

Finni ákærður fyrir 364 kynferðisbrot gegn börnum

Tugir látnir eftir hóteleldsvoða
Heimur

Tugir látnir eftir hóteleldsvoða

„Þetta er líklega allt að fara að enda í tárum“
Fólk

„Þetta er líklega allt að fara að enda í tárum“

Sindri Freyr týndur í Taílandi
Innlent

Sindri Freyr týndur í Taílandi

Selja sveitasetur á höfuðborgarsvæðinu
Myndir
Fólk

Selja sveitasetur á höfuðborgarsvæðinu

Steingrímur Ari Arason er látinn
Minning

Steingrímur Ari Arason er látinn

Embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu auglýst laust til umsóknar
Innlent

Embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu auglýst laust til umsóknar

„Ég þurfti að samþykkja hana á sínum tíma með æluna í hálsinum“
Pólitík

„Ég þurfti að samþykkja hana á sínum tíma með æluna í hálsinum“

Landið

Ekið á gangandi vegfaranda
Landið

Ekið á gangandi vegfaranda

Lögreglan leitar að vitnum
Séra Arnaldur blessar Árborg
Landið

Séra Arnaldur blessar Árborg

Dimma fannst á lífi í Rauðavatnsskógi
Landið

Dimma fannst á lífi í Rauðavatnsskógi

Dimma týnd á ný eftir átök við annan hrafn
Landið

Dimma týnd á ný eftir átök við annan hrafn

Æfir fyrir sögulegt sund niður Lagarfljótið
Landið

Æfir fyrir sögulegt sund niður Lagarfljótið

Jim Ratcliff flaug þyrlu á rjúpnaskotsvæði sitt í stað þess að keyra
Landið

Jim Ratcliff flaug þyrlu á rjúpnaskotsvæði sitt í stað þess að keyra

Loka auglýsingu