1
Fólk

Einstök paradís úti á landi komin á sölu

2
Innlent

Íhugar að fara í mál við Sigfús

3
Innlent

Forritari hafði betur gegn fyrrum vinnuveitanda í milljónalaunadeilu

4
Innlent

Sögufrægur álfasteinn fjarlægður úr Ármúlanum

5
Landið

Breskur stórmiðill velur fimm stórkostlegustu fossa Íslands

6
Innlent

Draumur Hannesar rættist ekki í Brasilíu

7
Skoðun

„Tekjurnar af ánni borga áburðinn á túnin“

8
Heimur

Segir dularfulla skepnu hafa náðst á myndavél í Mexíkó

9
Fólk

Sex gullnar reglur fyrir einhleypa í makaleit

10
Heimur

Mæðgur létust þegar tveir ökumenn kepptu í kappakstri á götum Leeds

Til baka

Syndandi svört svín laða að sér ferðamenn

Ferðamenn hafa tekið upp á því að synda með dýrunum og gefa þeim mat.

Túristasvín 2
Ferðamenn elska taka myndir af svínunum
Mynd: ARIS MESSINIS / AFP

Gríska eyjan Atokos hefur á skömmum tíma orðið að vinsælum áfangastað ferðamanna sem sækjast eftir heldur óvenjulegri upplifun. Á strönd eyjunnar geta gestir synt í tærum sjónum innan um hópa svartra svína sem virðast una sér vel við strandlífið.

Atokos er lítil eyja skammt frá Ithaka og er í einkaeigu. Hún var lengi lítt þekkt meðal erlendra ferðamanna en myndskeið af svínunum á ströndinni hafa farið eins og eldur í sinu á samfélagsmiðlum, einkum Instagram og TikTok.

Svínin halda sig að mestu á ströndinni þar sem þau leita að æti í sandinum. Inn á milli ganga þau út í sjó og synda eða kæla sig í vatninu. Ferðamenn hafa einnig tekið upp á því að synda með dýrunum og gefa þeim mat.

Ferðaþjónustuaðilinn Renato Bisha siglir með ferðamenn frá Ithaka til eyjunnar nokkrum sinnum á dag. Að hans sögn hefur eftirspurn eftir ferðum til Atokos aukist verulega eftir að svínin urðu þekkt á samfélagsmiðlum. Sambærilegar dagsferðir eru nú einnig farnar frá eyjunum Lefkada og Kefalonia.

„Eyjan hefur orðið mjög vinsæl vegna svínanna og margir biðja sérstaklega um að fá að koma til Atokos,“ segir Bisha.

Ferðamenn sem heimsótt hafa eyjuna lýsa upplifuninni sem einstakri. Bandaríski ferðamaðurinn Jamie Jackson sagðist aldrei hafa ímyndað sér að hún ætti eftir að synda með svínum í Grikklandi og mælti eindregið með heimsókninni.

Atokos tekur nú á móti þúsundum gesta, einkum yfir annasömustu sumarmánuðina, og hafa svínin þannig orðið að óvæntu aðdráttarafli á þessari litlu eyju.

Túristasvín
Mynd: ARIS MESSINIS / AFP
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Tugir missa vinnuna hjá Reykjavíkurborg
Innlent

Tugir missa vinnuna hjá Reykjavíkurborg

Nýtt bókaforlag vill efla íslenskulestur meðal fólks af erlendum uppruna
Menning

Nýtt bókaforlag vill efla íslenskulestur meðal fólks af erlendum uppruna

Fjöll gefur út nýtt lag af væntanlegri plötu
Menning

Fjöll gefur út nýtt lag af væntanlegri plötu

Flugmaður sá eitthvað á stærð við fjórar brauðristar á himni
Heimur

Flugmaður sá eitthvað á stærð við fjórar brauðristar á himni

Óboðinn og óvenjulegur gestur stökk inn um gluggann
Myndband
Heimur

Óboðinn og óvenjulegur gestur stökk inn um gluggann

Klappstýrur kæra My Chemical Romance
Heimur

Klappstýrur kæra My Chemical Romance

Góð bók gæti gert meira fyrir þig en þú heldur
Menning

Góð bók gæti gert meira fyrir þig en þú heldur

Björgvin Birgisson er fallinn frá
Minning

Björgvin Birgisson er fallinn frá

Kosningar í Ísrael breyta litlu um framtíð Palestínumanna
Heimur

Kosningar í Ísrael breyta litlu um framtíð Palestínumanna

Eyrún eyðslukló selur í hjarta Reykjavíkur
Myndir
Fólk

Eyrún eyðslukló selur í hjarta Reykjavíkur

Endaði á sjúkrahúsi eftir slys
Innlent

Endaði á sjúkrahúsi eftir slys

Kristinn Hrafnsson fagnar sigri Lula
Pólitík

Kristinn Hrafnsson fagnar sigri Lula

Heimur

Flugmaður sá eitthvað á stærð við fjórar brauðristar á himni
Heimur

Flugmaður sá eitthvað á stærð við fjórar brauðristar á himni

Vélin var í um 6.000 feta hæð þegar atvikið varð
Leikmenn Lokomotiv Moscow voru í lest sem Úkraínuher réðist á
Heimur

Leikmenn Lokomotiv Moscow voru í lest sem Úkraínuher réðist á

Óboðinn og óvenjulegur gestur stökk inn um gluggann
Myndband
Heimur

Óboðinn og óvenjulegur gestur stökk inn um gluggann

Klappstýrur kæra My Chemical Romance
Heimur

Klappstýrur kæra My Chemical Romance

Kosningar í Ísrael breyta litlu um framtíð Palestínumanna
Heimur

Kosningar í Ísrael breyta litlu um framtíð Palestínumanna

Að minnsta kosti 58 manns drepnir í árás vopnaðra manna á þorp í Nígeríu
Heimur

Að minnsta kosti 58 manns drepnir í árás vopnaðra manna á þorp í Nígeríu

Loka auglýsingu