Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Menning

Ris og fall Krumma

Fólk

Flug­freyja afhjúpar 15 hluti sem þú ættir aldrei að taka með í flug

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Fólk

Selja fal­legt fjöl­skyldu­hreiður með heitum potti og stórum garði

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni

Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Innlent

Kom með ólög­legan grænan varn­ing í far­angrinum

Minning

Guðjón Þórð­ar­son er fall­inn frá

Leiðbeiningar

Hjálp við aðganginn þinn, áskriftina og Mína síðu hjá Mannlífi.

Aðgangur og innskráning

Einn aðgangur gildir á Mannlífi, Heimildinni og Heimilisblaðinu: sama netfang og sama Mín síða. Þú skráir þig samt inn á hverjum vef fyrir sig.

Hvernig skrái ég mig inn?

Auðveldast er með kóða í tölvupósti, og þá þarf ekkert lykilorð:

  1. Smelltu á Skrá inn (manneskjan efst á síðunni), skrifaðu netfangið þitt og smelltu á Senda mér innskráningarkóða.
  2. Sláðu kóðann úr tölvupóstinum inn í sama glugga. Hann gildir í tíu mínútur.

Þú getur líka valið Skrá inn með lykilorði (netfang eða notandanafn og lykilorð) eða Halda áfram með Facebook.

Skrá inn

Kom enginn kóði?

Athugaðu ruslpóstinn, eða biddu um nýjan kóða. Ef enginn aðgangur er á netfanginu færðu póst um það í staðinn. Ef þú ert áskrifandi getur aðgangurinn verið skráður á annað netfang: prófaðu það, eða hafðu samband.

Ég gleymdi lykilorðinu

Smelltu á Gleymt lykilorð? við lykilorðið og þú færð slóð í tölvupósti til að velja nýtt. Þú getur líka skráð þig inn með kóða í tölvupósti og sleppt lykilorðinu.

Hvernig stofna ég aðgang?

Á nýskráningarsíðunni skrifarðu netfangið þitt og velur lykilorð (minnst 8 stafir), eða velur Halda áfram með Facebook. Þangað kemstu líka með Skrá inn og svo Nýskrá eða Stofna aðgang. Aðgangur verður líka til þegar þú kaupir áskrift, og þá þarf ekkert lykilorð.

Stofna aðgang

Ég sé ekki áskriftina mína

Staðfestu netfangið: á Minni síðu er Ljúktu við aðganginn, þar sem þú smellir á Senda hlekk við Staðfestu netfangið og opnar hlekkinn sem kemur í tölvupósti. Áskrift sem var keypt á netfangið þitt, til dæmis í síma eða á greiðsluseðli, tengist aðganginum þegar netfangið hefur verið staðfest. Sést hún ekki enn, hafðu samband.

Áskrift

Áskrift að Mannlífi opnar allar greinar Mannlífs. Sumar greinar eru opnar öllum; í hinum sérðu byrjunina þar til þú skráir þig inn með áskrift. Henni má segja upp hvenær sem er.

Vefáskrift
899 kr.
á mánuði

Kaupa áskrift

Hvernig kaupi ég áskrift?
  1. Farðu á áskriftarsíðuna. Þangað leiðir líka Kaupa áskrift í læstri grein.
  2. Veldu áskriftarleið og fylltu út nafn, kennitölu og netfang.
  3. Greiddu með korti, eða með greiðsluseðli í heimabanka (seðilgjald bætist við hverja greiðslu).

Ef þú ert ekki með aðgang verður hann til úr netfanginu og þú ert skráð(ur) inn þegar greiðslan hefur gengið í gegn. Ef netfangið er þegar á aðgangi fer áskriftin á hann og þú skráir þig inn með kóða sem er sendur þangað.

Hvernig breyti ég áskriftinni eða segi henni upp?

Á Minni síðu › Áskrift og greiðslur sérðu áskriftina þína, næstu greiðslu og hvernig hún er greidd:

  • Breyta áskrift: önnur áskriftarleið, nafn, netfang og sími.
  • Segja upp: áskriftin gildir út mánuðinn og lokast svo.
Hvernig skipti ég um greiðslukort?

Á Minni síðu › Áskrift og greiðslur smellirðu á Breyta greiðsluleið. Þá opnast síða Áskels, sem sér um greiðslurnar, þar sem þú skráir nýja kortið.

Hvar finn ég kvittanir?

Í greiðslusögunni á Minni síðu › Áskrift og greiðslur: Kvittun við hverja greidda greiðslu.

Ég fékk gjöf: hlekk á grein, blað eða þátt

Opnaðu hlekkinn, skráðu þig inn eða búðu til aðgang og smelltu á Opna gjöfina. Þá er gjöfin á aðganginum þínum og þú lest greinina, blaðið (undir Blöð) eða þáttinn þegar þú ert skráð(ur) inn.

Hlekkurinn er fyrir einn: sá sem opnar hann fyrstur fær gjöfina. Ef hún kom í tölvupósti skráirðu þig inn með netfanginu sem fékk póstinn. Gjöfin gildir til dagsins sem sá sem gaf hana valdi, oftast í 30 daga, og þá lokast efnið aftur. Daginn sérðu þegar þú opnar hlekkinn.

Að styrkja Mannlíf
  • Styrkja: mánaðarlegur styrkur eða stök greiðsla. Styrk er hætt á Minni síðu › Áskrift og greiðslur.

Í greininni

Efst í hverri grein eru Deila, Vista, Aa (leturstærð) og athugasemdirnar.

Hvernig vista ég grein til að lesa síðar?

Smelltu á Vista (bókamerkið) efst í greininni. Hún fer á Mína síðu › Vistað, undir Til að lesa, og færist undir Lesið þegar þú hefur lesið hana til enda. Sami listi er á öllum vefjunum.

Þú getur líka vistað grein án þess að opna hana, af forsíðunni, efnisflokkum og leit: bókamerkið er í hægra horni myndarinnar, í tölvunni þegar bendillinn fer yfir greinina og í símanum alltaf. Til þess þarftu að vera skráð(ur) inn.

Þegar vistaðar greinar sem þú átt eftir að lesa eru til upplesnar birtist Hlusta á vistaðar efst á listanum. Þær spilast þá hver á eftir annarri, og grein sem þú hlustar á til enda merkist lesin.

Á laugardagsmorgnum minnum við þig á greinarnar sem bíða ólesnar á listanum, í Helgarlestri: á Minni síðu › Tilkynningar, í vafranum ef þú hefur kveikt á tilkynningum þar og í tölvupósti ef þú vilt. Hann kemur aðeins ef eitthvað hefur bæst á listann síðan síðast, og á Minni síðu › Tilkynningar velurðu hvernig hann kemur, eða að hann komi ekki.

Get ég haldið áfram þar sem ég hætti?

Já, í löngum greinum. Þegar þú opnar aftur grein sem þú hættir í miðri býðst Halda áfram að lesa neðst á skjánum, og Halda áfram fer þangað sem þú varst. Vafrinn man staðinn, og ef þú ert skráð(ur) inn er hann líka munaður fyrir þig, svo þú getur byrjað í símanum og klárað í tölvunni.

Get ég stækkað letrið?

Já. Smelltu á Aa (Leturstærð) efst í greininni og veldu eina af fjórum stærðum. Textinn stækkar en myndir og gröf haldast eins. Vafrinn man stærðina á þessum vef.

Get ég skoðað myndirnar stærri?

Já. Smelltu á mynd í greininni, aðalmyndina eða mynd í textanum, og hún opnast stór yfir síðunni með myndatextanum. Með lyklaborði velurðu myndina með Tab og opnar hana með Enter.

Þar sem nokkrar myndir eru saman ferðu á milli þeirra með örvunum, örvalyklunum eða með því að strjúka til hliðar í símanum. Esc, ✕ eða smellur á myndina lokar henni, og í símanum líka að strjúka upp eða niður.

Hvernig deili ég tilvitnun úr grein?

Veldu setningu eða nokkrar í texta greinarinnar: dragðu yfir þær, eða haltu fingri á orði í símanum og dragðu. Þá birtist lítil stika við textann, í símanum neðst á skjánum.

Deila tilvitnun sendir textann með hlekk á greinina, um deilivalmynd símans eða á Facebook, X, Bluesky eða í tölvupósti. Hlekkurinn opnar greinina þar sem textinn er og merkir hann. Afrita með hlekk afritar textann innan gæsalappa, fyrirsögnina og hlekkinn. Mynd býr til mynd af tilvitnuninni í lit Mannlífs, og myndinni getur þú deilt, vistað eða afritað.

Tilvitnun er þrjú orð hið minnsta og mest 300 stafir, úr meginmáli greinarinnar (ekki úr myndatextum eða kössum).

Ég sé villu í grein eða veit meira

Neðst í hverri grein er Veistu meira? Láttu okkur vita. Skrifaðu hvað er rangt eða vantar, og netfangið þitt ef þú vilt svar, og smelltu á Senda. Ábendingin fer til ritstjórnarinnar og höfunda greinarinnar.

Hvernig er Mest lesið fundið?

Mest lesið eru þær nýlegu greinar sem flestir hafa opnað síðustu daga, eða á tímabilinu sem stendur við listann, til dæmis í vikunni. Aðeins er talið hve oft hver grein var opnuð, ekki hver opnaði hana.

Hvernig virka kannanir í greinum?

Í sumum greinum er spurning sem lesendur svara. Undir henni stendur hver má kjósa: allir, aðeins þau sem eru skráð inn, eða aðeins áskrifendur. Hver kýs einu sinni. Hvað þú valdir er ekki geymt með nafni þínu, aðeins að þú hafir kosið.

Niðurstöðurnar sjást um leið og þú hefur kosið, eða þegar könnuninni lýkur ef svo stendur við hana. Þegar 30 eða fleiri innskráðir hafa kosið í könnun sem er opin öllum geturðu borið saman atkvæði allra og innskráðra. Úrtakið er ekki valið af handahófi, svo niðurstöður netkönnunar eru vísbending, ekki mæling.

Allar kannanir, opnar og eldri, eru á /konnun/.

Má ég skrifa athugasemdir?

Já, allir sem eru skráðir inn, við greinar þar sem opið er fyrir athugasemdir. Þú getur kosið um athugasemdir annarra, og við athugasemd annarra geturðu valið Tilkynna eða Loka á þann sem skrifaði.

Mín síða

Allt sem snýr að aðganginum þínum er á Minni síðu: áskriftin og greiðslurnar, það sem þú hefur vistað, fréttabréfin, tilkynningar, athugasemdirnar þínar og aðgangurinn sjálfur (mynd, nafn, netföng, lykilorð og tveggja þátta auðkenning).

Hvernig vel ég fréttabréf og tilkynningar?

Á Minni síðu › Fréttabréf kveikirðu og slekkur á hverju fréttabréfi. Á Minni síðu › Tilkynningar velurðu hvað þú vilt frétta af, til dæmis svör við athugasemdunum þínum, og hvort það birtist á síðunni, í vafranum eða kemur í tölvupósti. Neðst í hverjum pósti er líka hlekkur til að afskrá þig.

Hvað er Nýlega lesið?

Á Minni síðu › Nýlega lesið eru greinarnar sem þú hefur lesið síðustu 90 daga þegar þú ert skráð(ur) inn, nýjast efst, og hve langt þú komst. Sami listi er á öllum vefjunum. Langar greinar sem þú átt eftir að klára eru líka á yfirliti Minnar síðu, undir Halda áfram að lesa.

Aðeins þú sérð listann. Grein hverfur af honum 90 dögum eftir að þú last hana síðast. Þú getur tekið grein af listanum, hreinsað hann allan, eða slökkt á honum: þá er honum eytt og ekkert er skráð fyrr en þú kveikir aftur. Ekkert er skráð þegar þú ert ekki skráð(ur) inn.

Hvernig eyði ég aðganginum?

Á Minni síðu, undir Aðgangur og öryggi, er Eyða aðgangi. Aðganginum er eytt innan 30 daga, á öllum vefjunum í einu, og þú getur dregið beiðnina til baka þangað til. Virkar áskriftir og styrkir enda.

Hafa samband

Ef eitthvað gengur ekki, eða ef þú finnur ekki áskriftina þína, skrifaðu okkur: