Sendiráð Íslands í Malaví hefur í samstarfi við Sameinuðu þjóðirnar afhent 33 mótorhjól, fjórar bifreiðar og þrjá sjúkrabíla til að efla þjónustu sveitarfélaga í landinu. Ríkisútvarp Malaví greinir frá þessu.
Ökutækin voru afhent fyrir milligöngu ráðuneytis sveitarstjórnarmála og byggðaþróunar í Malaví. Mótorhjólin fara til Machinga, Balaka og Salima og fær hvert sveitarfélag einnig einn sjúkrabíl. Þrjár bifreiðar fara til Mangochi og ein til ráðuneytisins.
Ben Phiri, ráðherra sveitarstjórnarmála í Malaví, tók við gjöfinni og þakkaði íslenskum stjórnvöldum og Sameinuðu þjóðunum fyrir stuðninginn. Hann sagði ökutækin koma á réttum tíma og myndu bæta þjónustu við íbúa.
„Með þessari gjöf er sýndur vilji til að styðja við íbúa Malaví. Við verðum að hugsa vel um ökutækin og sjá til þess að þau nýtist í þeim tilgangi sem þeim var ætlaður,“ sagði Phiri.
Davíð Bjarnason, sendiherra Íslands í Malaví, lýsti ánægju með að verkefnið væri komið í höfn. Hann þakkaði Sameinuðu þjóðunum fyrir að greiða fyrir innkaupunum, sjá um tollafgreiðslu og tryggja að ökutækin kæmust örugglega til ráðuneytisins og sveitarfélaganna.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir