Árni Bjarnason, bóndi á Uppsölum í Blönduhlíð í Skagafirði, lést 20. nóvember á Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Sauðárkróki, 95 ára að aldri.
Morgunblaðið greinir frá andláti hans.
Árni fæddist á Uppsölum 8. nóvember 1931 og ólst þar upp. Hann lauk gagnfræðaprófi á Laugum í Þingeyjarsveit og lærði þar smíðar. Hann tók ungur við búi foreldra sinna og stundaði búskap á Uppsölum til ársins 1998.
Árni sat lengi í hreppsnefnd Akrahrepps, gegndi starfi hreppstjóra og var fjallskilastjóri í 16 ár. Hann söng með karlakórnum Heimi í rúm 60 ár og smíðaði á efri árum um 150 líkön af burstabæjum og öðrum mannvirkjum.
Eiginkona Árna var Sólveig Árnadóttir. Þau eignuðust fjögur börn.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.































Athugasemdir