Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Blaðamaður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendiherra Íslands

Úrskurðar­nefnd staðfesti synjun ráðu­neyt­isins þar sem afhending tölvu­pósts um lokaðan fund gæti grafið undan trausti milli ríkja.

Tony Blair og Sturla Sigurjónsson, þáverandi sendiherra
Tony Blair og Sturla Sig­ur­jóns­son, þáver­andi sendi­herra Utan­rík­is­ráðu­neytið synj­aði blaða­manni um aðgang að tölvu­pósti þar sem sendi­herra Íslands í London rakti orð Blairs á lok­uðum fundi. Mynd: Samsett / JOE KLAMAR / AFP / Sendiráð Íslands í London

Utan­ríkis­ráðuneytinu var heimilt að synja ónefndum blaða­manni um aðgang að tölvu­pósti þar sem Sturla Sigurjónsson, þáverandi sendi­herra Íslands í London, rakti hvað Tony Blair, fyrr­verandi forsætis­ráðherra Bretlands, sagði á lokuðum fundi með sendi­herrum Norður­landanna og Eystrasalts­ríkjanna. Þetta er niður­staða úrskurðar­nefndar um upplýsingamál í úrskurði sem hún kvað upp 18. nóvember.

Fundurinn fór fram 25. febrúar á vettvangi NB8, óformlegs samstarfs Norður­landanna fimm og Eystrasalts­ríkjanna þriggja. Þar var rætt um svonefnt Friðarráð og friðar­umleitanir fyrir botni Miðjarðar­hafs. Daginn eftir sendi sendi­herrann utan­ríkis­ráðherra og fjórum starfs­mönnum ráðuneytisins tölvupóst um fundinn undir yfir­skriftinni „Tony Blair og Friðarráð“.

Blaða­maðurinn óskaði 15. apríl eftir öllum upplýsingum um fundinn. Ráðuneytið afmarkaði beiðnina við tölvu­póstinn og synjaði henni 30. apríl. Það taldi póstinn vera vinnugagn og sagði að afhending hans gæti grafið undan trausti í samskiptum Íslands við önnur ríki. Samkvæmt ráðuneytinu var afstaða einstakra ríkja enn í mótun. Blaða­maðurinn kærði synjunina og benti á að Blair væri einka­aðili og Friðarráð væri ekki viðurkennd alþjóða­stofnun.

Nefndin fór yfir póstinn og hafnaði því að hann teldist vinnugagn í skilningi upplýsinga­laga. Sendi­herrann hefði dregið saman megin­atriðin í máli Blairs og ekkert í póstinum benti til þess að hann væri liður í undir­búningi ákvörðunar eða samnings.

Nefndin féllst á að Blair hefði ekki komið fram fyrir hönd erlends ríkis. Hún taldi engu að síður að frásögnin varðaði samskipti Íslands við sjö önnur ríki á lokuðum fundi. Þar hefðu meðal annars verið rædd mál sem enn væru til meðferðar. Afhending póstsins gæti því grafið undan gagnkvæmu trausti ríkjanna. Nefndin staðfesti á þeim grund­velli ákvörðun ráðuneytisins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Asninn Hope í Georgíu hefur fengið staðfest heimsmet frá Guinness
Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Innlent

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Maðurinn ók á röngum vegarhelmingi undan lögreglu í Mosfellsbæ, stöðvaði síðan bílinn og hljóp á brott.

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum