Maður lést í gær þegar hann féll úr Sierra Towers íbúðaturninum í West Hollywood í Kaliforníu. Samkvæmt frétt TMZ var maðurinn þar til að skoða íbúð á 18. hæð í annað sinn á tveimur dögum. Óljóst er hvað leiddi til fallsins.
Maðurinn skoðaði íbúðina fyrst á mánudag. Að sögn heimildarmanna TMZ sagðist hann vera ánægður með hana og vilja koma aftur daginn eftir. Tveir fasteignasalar tóku á móti honum í gær og biðu á meðan hann skoðaði íbúðina. Þegar nokkrar mínútur voru liðnar fóru þeir að leita að honum og sáu þá að hann lá á götunni fyrir neðan. Lögregla kom á vettvang síðdegis eftir að tilkynning barst um fallið.
Annar maður lést við íbúðarskoðun í sama húsi í nóvember 2020. Samkvæmt umfjöllun fjölmiðla á þeim tíma féll hann af svölum þegar hann skoðaði auða íbúð á 27. hæð.
Sierra Towers hefur um áratugaskeið verið heimili þekktra listamanna. Meðal þeirra sem þar hafa búið eru Cher, Elton John, Lindsay Lohan og Courteney Cox.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir