Stella Samúelsdóttir, framkvæmdastýra UN Women á Íslandi, varar við því að hótanir og niðurlæging á netinu fæli fólk frá því að bjóða sig fram til ábyrgðarstarfa og taka þátt í opinberri umræðu. Hún hvetur stjórnvöld til að auka fjárveitingar til lögreglunnar svo hraða megi meðferð mála sem varða stafrænt ofbeldi.
Þetta kemur fram í grein á Vísi sem Stella birti í morgun í tilefni af 16 daga átaki UN Women á Íslandi. Átakið ber yfirskriftina „Stafrænt ofbeldi er alvöru ofbeldi“ og beinist í ár að hatursummælum og einelti á netinu. Í herferðinni eru notuð gróf ummæli sem hafa birst opinberlega og að sögn Stellu engar afleiðingar haft fyrir þá sem létu þau falla.
„Þegar einstaklingar treysta sér ekki til að bjóða sig fram til ábyrgðarstarfa, taka þátt í lýðræðislegri umræðu eða láta skoðanir sínar í ljós vegna ótta við hótanir og niðurlægingu, er hættulega vegið að sjálfum grunnstoðum lýðræðisins.“
Segir yfirvöld ekki anna öllum málum
Að sögn Stellu hafa nærri tvær af hverjum þremur konum í heiminum orðið fyrir stafrænu kynbundnu ofbeldi. Hún segir konur í fjölmiðlum, opinberum störfum og mannréttindabaráttu meðal þeirra sem helst verða fyrir slíku ofbeldi.
„Umfangið er orðið slíkt að yfirvöld hafa ekki bolmagn til að sinna öllum þeim málum sem koma inn á borð til þeirra,“ skrifar Stella.
Hún telur íslenska löggjöf um stafrænt ofbeldi með því besta sem gerist í heiminum en segir viðbrögðin einnig þurfa að beinast að umræðumenningunni sjálfri.
„Áskorunin sem við stöndum frammi fyrir er ekki síður menningarlegs eðlis, því á stafrænum miðlum fær kvenfyrirlitning að þrífast óáreitt undir yfirskyni tjáningarfrelsis og alltof mörg færa sér það í nyt.“
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir