Heill áttundi bekkur var í enskutíma í Hagaskóla á þriðjudag þegar nemendurnir sáu tvo starfsmenn skólans hafa samfarir í skrifstofurými, samkvæmt heimildum Mannlífs. Í fyrri umfjöllun fjölmiðla um málið kom fram að nemendur hefðu séð starfsmennina kyssast í gegnum sandblásið gler.
Samkvæmt heimildum Mannlífs varð fjöldi nemenda vitni að atvikinu og eru myndskeið sögð vera til af því. Bæði starfa við skólann en hvorugt í stöðu kennara, samkvæmt upplýsingum Mannlífs. Samkvæmt sömu heimildum er annar aðilinn þjóðþekktur. Viðkomandi var til umfjöllunar nýverið í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum vegna sambands síns. Maki viðkomandi hefur læst samfélagsmiðlaaðgangi sínum. Aðilinn hefur ekki svarað fyrirspurnum.
Sigríður Nanna Heimisdóttir, skólastjóri Hagaskóla, sendi foreldrum tilkynningu eftir að fjölmiðlar spurðust fyrir um atvikið, en í þeirri tilkynningu kom fram að um kossaflens væri að ræða. „Tveir starfsmenn skólans, sem töldu sig vera í einrúmi, sáust kyssast í gegnum sandblásið gler í gær. Skólastjórnendur hafa rætt við hlutaðeigandi og málið er til skoðunar í samráði við mannauðsskrifstofu skóla- og frístundasviðs,“ sagði þar.
Til umræðu hefur verið að of mikið hafi verið gert úr málinu, þar sem aðeins væri um kossaflens að ræða. Það samræmist hins vegar ekki frásögnum nemenda.
Sigríður Nanna svaraði ekki ítarlegum spurningum um atvikið.
„Ástæða þótti til að upplýsa um málið í gær þar sem það var komið í umræðu og fyrirspurnir að berast vegna þess. Málið er í vinnslu innan skólans og í samstarfi við mannauðsskrifstofu skóla- og frístundasviðs og ég mun ekki tjá mig frekar um það við fjölmiðla,“ sagði Sigríður Nanna í svari við fyrirspurn.
Mannlíf hefur mynd undir höndum sem sýna atvikið. Útlínur starfsmannanna sjást greinilega í gegnum rúðu í öðru rými en hún er að mestu sandblásin og því er ekki hægt að bera kennsl á þau. Í gegnum glæran neðri hluta rúðunnar sést svartur sófi. Karlmaðurinn virðist sitja eða liggja í sófanum og konan er upprétt ofan á honum.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir