Stefán Pálsson sagnfræðingur og Egill Helgason fjölmiðlamaður hafa báðir tjáð sig um umræðuna sem skapast hefur eftir að tveir starfsmenn Hagaskóla sáust kyssast í húsakynnum skólans. Málið er nú til skoðunar hjá mannauðsskrifstofu skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar.
Stefán segir viðbrögðin við atvikinu heldur ýkt og rifjar upp að á sínum tíma hafi ástarsamband tveggja kennara í Hagaskóla verið á allra vörum.
„Þegar ég var í Hagaskólanum vissu ALLIR af ástarsambandi milli tveggja kennara skólans,“ skrifar Stefán. Hann segir að sambandið hafi orðið tilefni að pískri á göngunum, augngotum og jafnvel óviðeigandi athugasemdum frá einstaka nemendum.
Hann tekur þó fram að slíkt hafi ekki verið í lagi, en finnst það engu að síður „vandræðalegt og kjánalegt“ að skólastjórnendur þurfi að biðjast opinberlega afsökunar vegna þess að starfsmenn hafi sést kyssast.
„Blessuð börnin hafa séð hundrað sinnum svæsnari hluti á gemsunum sínum,“ skrifar Stefán og vísar þar meðal annars til þess sem börn komast í snertingu við á samfélagsmiðlum.
Færsla Stefáns vakti nokkur viðbrögð. Þórunn Valdimarsdóttir rithöfundur og lífskúnstner tók meðal annars undir gagnrýnina og spurði: „Og hvað er svona voðalegt við faðmlag og koss? Mikið ofboðslega er búið að djöfla klofið.“
Egill Helgason rifjar einnig upp skólagöngu sína í Hagaskóla og segir að hópur ungra kennara hafi hafið störf við skólann um svipað leyti og hann hóf þar nám.
„Prýðisfólk,“ skrifar Egill og bætir við að eftir því sem hann muni hafi tvö hjónabönd orðið til í hópnum.
„Þessu hlýtur að hafa fylgt eitthvert kossaflens, en ég veit svosem ekki hvar það fór fram. Það komst allavega ekki í fjölmiðlana,“ skrifar Egill.
Eins og greint hefur verið frá sáust tveir starfsmenn Hagaskóla kyssast í húsakynnum skólans. Skólastjórnendur hafa rætt við viðkomandi og málið er til skoðunar í samráði við mannauðsskrifstofu skóla- og frístundasviðs.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir