Heimildir Mannlífs herma að nemendur í Hagaskóla hafi á þriðjudag orðið vitni að því að tveir starfsmenn skólans höfðu samfarir í skrifstofurými. Sú frásögn er á annan veg en komið hefur fram í umfjöllun fjölmiðla um málið hingað til en þar var greint frá því að nemendur hefðu séð starfsmennina kyssast í gegnum sandblásið gler.
Samkvæmt heimildum Mannlífs varð mikill fjöldi nemenda vitni að atvikinu. Stjórnendur Hagaskóla hafa ekki svarað fyrirspurnum Mannlífs um málið.
Samkvæmt upplýsingum Mannlífs er hvorugur starfsmanna kennari við skólann. Þá eiga vera til myndskeið af atvikinu.
Sigríður Nanna Heimisdóttir, skólastjóri Hagaskóla, sendi foreldrum tilkynningu eftir að fjölmiðlar spurðust fyrir um atvikið.
„Skólastjórnendur hafa rætt við hlutaðeigandi og málið er til skoðunar í samráði við mannauðsskrifstofu skóla- og frístundasviðs,“ segir í tilkynningunni. Þar kemur einnig fram að starfsfólk hafi verið sýnilegt á göngum skólans svo nemendur gætu leitað til þess með spurningar eða rætt það sem gerðist.
Í samtali við RÚV sagði Sigríður Nanna að henni þætti óeðlilegt að starfsfólk kysstist á vinnutíma. Aðspurð sagðist hún telja slíkt brjóta gegn reglum skólans. „Mér finnst þetta dómgreindarbrestur,“ sagði hún um kossana. Hún sagði skólastjórnendur enn vera að afla upplýsinga um atvikið. Í Hagaskóla stunda nemendur í áttunda til tíunda bekk nám.
UPPFÆRT - 11:43
„Ástæða þótti til að upplýsa um málið í gær þar sem það var komið í umræðu og fyrirspurnir að berast vegna þess. Málið er í vinnslu innan skólans og í samstarfi við mannauðsskrifstofu skóla- og frístundasviðs og ég mun ekki tjá mig frekar um það við fjölmiðla,“ sagði Sigríður Nanna við fyrirspurnum Mannlífs.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir