Það fer að hvessa suðvestanlands síðdegis og í kvöld gengur suðaustanstormur yfir miðhálendið. Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir miðhálendið sem gildir frá klukkan 18 til 23 í kvöld.
Í dag verður suðaustanátt, víða 8 til 15 metrar á sekúndu. Það rignir austanlands og við vesturströndina en annars sleppur fólk að mestu við rigninguna. Hitinn verður á bilinu 1 til 7 stig.
Síðdegis fer vindurinn upp í 13 til 20 metra á sekúndu suðvestanlands og fer þá líka að rigna. Það getur hvesst hressilega undir Eyjafjöllum, á Kjalarnesi og undir Hafnarfjalli. Þar getur aksturinn orðið erfiður á ökutækjum sem taka á sig mikinn vind. Það lægir og dregur úr rigningunni á þessum slóðum í kvöld.
Á morgun bætir aftur í vindinn og er spáð suðaustan 15 til 23 metrum á sekúndu. Vestanlands verður þó hægara fram eftir degi. Það rignir með köflum, talsvert á Suðaustur- og Austurlandi, og svo hlýnar aðeins.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir