Karen Ósk Kjartansdóttir, sem keppti fyrir hönd Íslands í fegurðarsamkeppninni Miss Europe Continental á Ítalíu árið 2023, hefur stofnað einkahlutafélagið Straumrót en greint er frá þessu í Lögbirtingablaðinu.
Karen Ósk er eini stofnandi félagsins og situr ein í stjórn þess. Hún fer jafnframt með framkvæmdastjórn og prókúruumboð. Gunnhildur Guðnadóttir er varamaður í stjórn og Guðmundur Hjaltason er skráður endurskoðandi félagsins.
Meðal skráðra markmiða félagsins eru þróun, prófun, dreifing og rekstur stafrænna eigna. Tilgangur þess nær einnig til rekstrar, þróunar og eignarhalds á fasteignum, lánastarfsemi og kaupa og sölu verðbréfa.
Karen Ósk tók þátt í Miss Universe Iceland árið 2022 og komst í hóp tíu efstu í Ungfrú Ísland og keppti fyrir hönd Íslands í Miss Europe Continental á Ítalíu árið 2023.. Þegar hún var spurð árið 2022 hvar hún sæi sig eftir fimm ár svaraði hún: „Eftir fimm ár sé ég sjálfa mig í háskóla og í pólitíkinni.“
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir