Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Fólk

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Húsið var reist árið 1978

Blátún 2
Blátún 2

Fimm herbergja einbýlishús við Blátún 2 á Álftanesi er komið á sölu. Húsið var reist árið 1978 og er á tveimur hæðum með þremur svefn­herbergjum og tveimur baðherbergjum. Ásett verð er 158,5 milljónir króna.

Eignin er alls 220,9 fermetrar að meðtöldum 48,2 fermetra bílskúr. Neðri hæðin er 106,7 fermetrar en sú efri 66 fermetrar. Gólf­flötur efri hæðarinnar er þó stærri en skráð stærð segir til um þar sem hluti hennar er undir súð. Samkvæmt sölu­lýsingu var nýlega skipt um járn og pappa á þaki og húsið málað að utan að hluta.

Á neðri hæð eru stofa og borðstofa með stórum gluggum og aukinni lofthæð að hluta. Í eldhúsinu er gashellu­borð, ofn í vinnuhæð og borð­krókur. Inn af eldhúsinu er þvottahús með útgengi í bakgarð. Þá eru eitt svefn­herbergi og baðherbergi með sturtu á hæðinni.

Á efri hæð eru tvö svefn­herbergi, fata­herbergi og baðherbergi með baðkari. Útgengt er á svalir úr hjóna­herberginu. Hitt svefn­herbergið var áður tvö aðskilin herbergi. Í opnu holi á hæðinni er pláss fyrir skrifborð.

Yfir­byggður gangur liggur milli hússins og bílskúrsins og nýtist meðal annars til hjóla­geymslu. Bak við bílskúrinn er upphituð geymsla og á lóðinni er einnig óupphitaður geymslu­skúr. Bíla­planið er upphitað.

Í skjól­sælum garðinum eru grasflöt, hellu­lagnir og sjávar­grjót. Fyrir framan húsið er hellulagt setusvæði með markísum. Skólar, íþrótta­aðstaða og sundlaug eru í göngufæri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Stúlkan var á rafmagnsreiðhjóli á Byggðavegi við Vanabyggð. Lögregla óskar eftir upplýsingum frá vitnum.
Innlent

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

„Lífið er svo miklu betra með þér“

„Niður­lægjandi að smækka fólk niður í tölur“

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Af hverju getur lyktin af makanum verið svona ómótstæðileg?

Vigtuð vikulega og sett á matarplan aðeins tíu ára gömul