Héraðsdómur Vestfjarða hefur sýknað karlmann á Patreksfirði af ákæru um hættubrot fyrir að hafa gefið kunningja sínum köku sem talin er hafa innihaldið kannabis. Gesturinn fékk hraðan hjartslátt og varð ofsahræddur síðar um kvöldið. Dómurinn taldi ósannað að neysla kökunnar hefði stofnað lífi hans eða heilsu í augljósan háska.
Atvikið átti sér stað á Patreksfirði að kvöldi 11. nóvember 2024. Mennirnir höfðu þekkst frá unga aldri og hafði gesturinn stundum komið við hjá ákærða á ferðum sínum um Vestfirði. Fyrir dómi greindi þá á um hvað ákærði hefði sagt þegar hann bauð gesti sínum kökuna.
Gesturinn kvað ákærða hafa sótt poka í kæli og haft á orði að jólakökurnar væru mættar. Hann hefði talið sig vera að borða venjulega smáköku. Ákærði sagðist hins vegar hafa kallað hana bjórköku eða grasköku og talið gestinn vita hvað í henni væri. Sonur ákærða minntist þess að faðir hans hefði kallað hana bjórköku.
Eftir kvöldmat fann gesturinn fyrir óþægindum í hálsi og taldi fyrst að fiskibein stæði þar fast. Hann fór að svitna og skjálfa og óskaði eftir læknisaðstoð. Læknir sem kom á staðinn lýsti því að maðurinn hefði verið með mjög hraðan púls og háan blóðþrýsting. Skyndipróf á þvagi reyndist jákvætt fyrir kannabisefnum.
Í dóminum frá 19. nóvember kemur fram að engar upplýsingar hafi legið fyrir um magn kannabisefna í kökunni eða styrk þeirra í líkama mannsins. Þá hafi læknisgögn ekki sýnt að ástand hans hefði verið beinlínis hættulegt. Við mat á ásetningi leit dómurinn meðal annars til þess að bæði ákærði og sonur hans höfðu sjálfir fengið sér bita af kökunni.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir