Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Pólitík

Þor­gerður svar­aði Sigmundi fullum hálsi eftir frammí­kall á Alþingi

Pólitík

Guð­mundur Ingi greindi frá „einum léleg­asta laga­brand­ara“ Alþingis

Fólk

Fyrrum for­stjóri selur hús með heims­frægan fyrr­ver­andi eig­anda

Innlent

Segir hús­næð­is­mark­að­inn vera „eina stóra svika­myllu“

Innlent

„Ég valdi ekki bílslysið, krabba­meinið eða fötl­un­ina“

Fólk

Flúði Talibana fimm ára en hlaut íslensku­verð­laun þremur árum seinna

Heimur

„Ein­hyrn­ingur“ fannst í Eist­landi

Landið

Leifar af skála frá land­náms­tíma fund­ust á Aðalbóli

Heimur

Segja Rússa hafa skipu­lagt árás undir fölsku flaggi í Póllandi

Heimur

Meintur flug­dólgur sleppur með hluta skrekks­ins

Hæddist að Snorra og Miðflokknum í pontu

„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Rit­stjór­ann“

Orðaskipti á þingi
Orða­skipti á þingi Snorri Másson, þing­maður Mið­flokks­ins, spurði dóms­mála­ráð­herra um afstöðu stjórn­valda til hug­mynda um brott­far­ar­stöð í Rúanda. Mynd: Víkingur

Snorri Másson, þing­maður Mið­flokks­ins, spurði á Alþingi í gær hvort það hefði verið frum­hlaup hjá Kristrúnu Frosta­dóttur for­sæt­is­ráð­herra að vísa hug­mynd um þátt­töku Íslands í brott­far­ar­stöð í Rúanda á bug.

Þorbjörg Sigríður Gunn­laugs­dóttir dóms­mála­ráð­herra sagði Snorra mis­skilja áform ríkj­anna fimm sem standa að stöð­inni og gagn­rýndi hann fyrir að sitja hjá í útlend­inga­málum á þingi en tala svo um verk­leysi í hlað­varpi sínu.

Tilefni orða­skipt­anna voru áform Dan­merkur, Þýska­lands, Aust­ur­ríkis, Grikk­lands og Hollands um að opna stöð í Rúanda árið 2027 fyrir fólk sem hefur fengið synjun um alþjóð­lega vernd. Kristrún hafði sagt í sam­tali við RÚV dag­inn áður að hún sæi ekki ástæðu til að Ísland færi þessa leið. Málið hefði ekki verið rætt í rík­is­stjórn.

Snorri spurði Þor­björgu hvort ráð­herr­arnir hefðu rætt málið sín á milli áður en Kristrún fór í við­talið. „Hæstv. for­sæt­is­ráð­herra veitti engin svör hér fyrr í mán­uð­inum þegar ég vildi hvetja hana til að skoða þennan kost en mætti svo í Rík­is­út­varpið í gær og sló þetta út af borð­inu, sagði ekki einu sinni að þetta yrði skoðað.“

Ekkert ríki fari leið Miðflokksins

Snorri sagði Mið­flokk­inn lengi hafa viljað flytja fleiri þætti hæl­is­leit­enda­kerf­is­ins úr landi. „Þetta eru til­lögur af þeim toga sem Mið­flokk­ur­inn hefur talað fyrir.“

Þorbjörg benti á að Danir myndu áfram afgreiða umsóknir um alþjóð­lega vernd í Danmörku. Fólk yrði fyrst sent til Rúanda að lok­inni máls­með­ferð.

„Það er líka grund­vall­armis­skiln­ingur þing­manns­ins að þessi fimm ríki séu að fara leið Mið­flokks­ins. Ekkert ríki í heim­inum fer leið Mið­flokks­ins,“ sagði ráð­herr­ann með hæðn­is­tón.

Snorri sagði Dani hafa dregið sína lær­dóma af rekstri brott­far­ar­stöðva heima fyrir. „Danir eru að fara í þessar brott­far­ar­stöðvar vegna þess að þeir líta svo á að það brott­far­ar­stöðvabákn sem þeir hafa komið sér upp í Danmörku hafi ekki borið þann árangur sem nauð­syn­legur er til þess að ná raun­veru­legri stjórn á landa­mær­unum.“

Hann kall­aði eftir skýru svari um afstöðu íslenskra stjórn­valda. „Ef hæstv. dóms­mála­ráð­herra ætlar að halda áfram að taka þátt í því þá er eins gott að menn gefi það bara út skýrt hvort þeir ætli ekki að leita þess­ara leiða.“

Þorbjörg hafði áður bent á að Mið­flokk­ur­inn hefði ekki stutt stofnun brott­far­ar­stöðvar hér á landi. Snorri svar­aði því til að eng­inn þing­maður hefði greitt atkvæði gegn henni. Í loka­svari sínu vék Þorbjörg að hjá­setu Snorra og hlað­varpi hans í hæðni.

„Ég er ekki viss um að danskir þing­menn mæti í þing­sal alla daga eins og hv. þing­maður gerir og sitji svo hjá í útlend­inga­málum, fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Rit­stjór­ann og talar um verk­leysi. Ég sé ekki alveg kraft­inn og þung­ann í þeim aðgerðum.“


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

„Mikið ofboðslega er búið að djöfla klofið“
Heimur

Ísraelar hefja hern­að­ar­að­gerð í mið­hluta Gaza

Heimur

Greene telur trufl­an­irnar eftir kosn­ing­arnar ekki til­viljun

Innlent

Stakk starfs­mann í háls­inn með blý­anti

Pólitík

Pólitík

Líkir yfir­stjórn lög­regl­unnar við „frekan krakka í dóta­búð“

„Þetta er ríkisstjórninni til háborinnar skammar“
  • Pólitík

    Ragna og Nanna vilja skoða skyldu mæðra til að taka orlof strax eftir fæð­ingu

  • Pólitík

    „Það er kapps­mál að gera það að aðlað­andi kosti að flytja á lands­byggð­ina“

  • Pólitík

    Grímur telur vel rök­stutt að fella brott­vís­un­ina úr gildi

  • Pólitík

    Össur segir Viðreisn veikasta hlekk rík­is­stjórn­ar­innar

  • Pólitík

    Segir flokks­menn Guðrúnar und­ir­búa mót­fram­boð gegn henni