Tveir gistu í fangageymslum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu þegar dagbók hennar var rituð í nótt.
Lögreglu barst tilkynning um mann sem öskraði í Reykjavík. Þá var tilkynnt um minniháttar umferðaróhapp í póstnúmeri 107. Engin meiðsl urðu í óhappinu.
Einnig var tilkynnt um þjófnað úr verslun í Hafnarfirði og grunsamlegar mannaferðir í Kópavogi.
Auk þess sinnti lögreglan ýmsum umferðarmálum í gærkvöldi og í nótt.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.































Athugasemdir