Hildur Lilliendahl Viggósdóttir, sem var sagt upp störfum hjá Reykjavíkurborg í haust eftir átján ára starf, segir líðan sína hafa verið afar slæma undanfarnar þrjár vikur. Hún lýsir mikilli sorg, kvíða og stjórnlausum grátköstum í einlægri færslu á Facebook þar sem hún greinir frá því hvernig henni hefur gengið að takast á við uppsögnina.
„Í dag eru þrjár vikur síðan ég var rekin úr vinnunni með bréfi á Ísland punktur is eftir átján ár í starfi, frekara vinnuframlag afþakkað og aðgangskortið mitt gert óvirkt,“ skrifar Hildur.
Hún segist aðspurð um líðan sína að hún hafi hingað til átt erfitt með að koma orðum að því hvernig henni líði. Í morgun hafi hún í fyrsta sinn í þessu ferli tekið kvíðastillandi lyf til að komast í klippingu og hafi síðan ákveðið að nýta áhrif þess til að skrifa færsluna.
„Ég hef ekki getað það hingað til. Ég hef reyndar eiginlega ekki getað gert neitt. Mér líður gjörsamlega djöfullega,“ segir hún.
Hildur lýsir því hvernig ágætir dagar komi inn á milli, þar sem hún haldi að erfiðasti tíminn sé að baki, en síðan hellist yfir hana lamandi sorg.
„Svo koma stjórnlaus grátköst en þau eru miklu betri en sorgin, þá er ég að hleypa henni út,“ skrifar hún.
Hún segir sig reyna að gefa sér tíma til að vinna úr tilfinningunum en ferlið hafi reynst erfiðara og tekið lengri tíma en hún bjóst við. Hún segir áminningar um uppsögnina vera víða og að snjallúrið hennar sýni nær stöðugt streituástand.
Segist hafa upplifað sig einangraða í starfinu
Hildur segir uppsögnina ekki hafa komið sér á óvart. Þrátt fyrir áfallið hafi fylgt henni ákveðinn léttir.
Hún rifjar upp að fyrir tveimur árum hafi hún sagt vinkonum sínum frá því að henni liði einmana á vinnustaðnum, þrátt fyrir að hún elskaði verkefnin sín.
„Mér líður svo mikið eins og ég sé ein á þessum vinnustað. Samt elska ég verkefnin mín. Bara upplifi mig eina og einangraða,“ sagði hún þá.
Hún segist hafa fundið fyrir því frá borgarstjórnarkosningunum síðasta vor að uppsögnin væri yfirvofandi. Framkoma yfirmanns og andrúmsloftið á vinnustaðnum hafi gefið henni vísbendingar um að slíkt gæti gerst.
Þrátt fyrir að hafa búist við uppsögninni hafi hún ekki átt von á því að hún yrði jafn erfið og raun ber vitni.
Hildur sér þó einnig jákvæðar hliðar á stöðunni. Hún segist upplifa að hún sé að losna úr því sem hún kallar ofbeldissamband og geti vonandi farið að vinna úr því þegar áfallið sé gengið yfir.
„Ég veit að þegar ég verð búin að jafna mig mun eitthvað miklu miklu betra taka við,“ skrifar hún.
Hún leggur jafnframt áherslu á að hún telji sig ekki bera ábyrgð á uppsögninni og hafi ekkert til að skammast sín fyrir.
„Skömmin er þeirra þótt framkoman sé yfirgengilega niðurlægjandi,“ segir hún.
Þakklát fyrir stuðninginn
Þrátt fyrir að skrifa færsluna með „dúndrandi hjartslátt og skjálfta“ segist Hildur vilja svara þeim fjölmörgu sem hafa spurt hvernig henni líði.
Hún segir að fólk þurfi ekki að hafa áhyggjur af sér og sé þess fullviss að líðan hennar muni batna með tímanum.
Hún segist finna fyrir mikilli umhyggju og samkennd frá fólkinu í kringum sig og þakkar sérstaklega fyrir stuðninginn, þótt hún hafi ekki alltaf orku til að svara skilaboðum eða ræða málin.
„Þið þurfið öll vita að þótt ég sé ekki alltaf í ástandi til að sýna það, svara skilaboðum eða ræða málin, þá er ég óendanlega þakklát fyrir þessa miklu og auðsýndu samkennd og hún er raunverulega að gera mér þetta ferli auðveldara en annars hefði verið,“ skrifar Hildur að lokum.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir