Dómsmálaráðuneytið synjaði konu um náðun frá fangelsisrefsingu. Hún glímir við ýmis heilsuvandamál og er metin óvinnufær. Umboðsmaður Alþingis hefur lokið athugun á kvörtun hennar og gerir athugasemdir við vinnubrögð náðunarnefndar.
Konan sótti um náðun í mars síðastliðnum vegna tveggja fangelsisdóma frá árunum 2021 og 2022. Hún lagði fram læknisvottorð sem sagði að heilsu hennar hefði hrakað mikið.
Samkvæmt vottorðinu glímir konan við þunglyndi, kvíða og vefjagigt. Hún finnur einnig fyrir afleiðingum vinnuslyss frá árinu 2010. Þar að auki þjáist hún af svefnleysi, minnisleysi, athyglisbresti og svokallaðri heilaþoku. Hún var metin óvinnufær og ekki talin geta unnið eða sinnt samfélagsþjónustu.
Fangelsismálastofnun hafði áður samþykkt að konan afplánaði dóminn með samfélagsþjónustu. Konan taldi sig ekki lengur geta það vegna versnandi heilsu.
Dómsmálaráðuneytið hafnaði beiðni konunnar um náðun í júní eftir að náðunarnefnd lagði það til.
Umboðsmaður Alþingis gerði ekki athugasemdir við mat nefndarinnar á heilsu konunnar. Hann taldi sig ekki hafa forsendur til þess, enda er læknir í nefndinni.
Umboðsmaður benti þó á að enginn hefði skrifað undir tillögu náðunarnefndar. Þar kom heldur ekki fram hvaða nefndarmenn tóku þátt í ákvörðuninni.
Umboðsmaður taldi líka að nefndin þyrfti að útskýra niðurstöður sínar betur, einkum hvernig hún metur heilsu þeirra sem sækja um náðun.
Í bréfi til dómsmálaráðherra 30. október bað umboðsmaður ráðuneytið að gæta betur að þessu í framtíðinni og birti umboðsmaður bréf sitt á vef embættisins í byrjun nóvember.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir