Inga Sæland
„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
Inga Sæland
Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Innlent

Gréta María fer í mál við Samkaup

Skoðun

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Innlent

Ald­urs­mis­munun hjá lög­regl­unni undir stjórn Höllu Bergþóru

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Innlent

Dómari fór í taug­arnar á borg­ara

Fólk

Hlýlegt heim­ili með grónum garði í Skerja­firði til sölu

Innlent

Aðskota­efni í kexi

Sigmundur sakaði ríkisstjórnina um „dáraskap“ og Kristrún svaraði fullum hálsi

„Það er í hæsta máta óábyrgt að halda áfram þeirri halla­rekstr­ar­stefnu sem var hér stunduð í áraraðir vegna þess að fólk treystir sér ekki til að klára málin.“

Deilt um efnahagsstjórn
Deilt um efna­hags­stjórn Kristrún Frosta­dóttir for­sæt­is­ráð­herra og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, tók­ust á um efna­hags­stefnu rík­is­stjórn­ar­innar á Alþingi. Mynd: Samsett / Xuthoria / Wikimedia Commons (CC BY-SA 4.0) / Víkingur

Harðar orða­hnipp­ingar urðu milli Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, for­manns Mið­flokks­ins, og Kristrúnar Frosta­dóttur for­sæt­is­ráð­herra í óund­ir­búnum fyr­ir­spurnum á Alþingi í dag. Sig­mundur gagn­rýndi efna­hags­stefnu rík­is­stjórn­ar­innar harð­lega og sak­aði hana um að hafa aukið efna­hags­vand­ann með skatta- og gjalda­hækk­unum. Kristrún hafn­aði gagn­rýn­inni og sagði rík­is­stjórn­ina stað­ráðna í að koma rík­is­fjár­mál­unum í jafn­vægi.

Sig­mundur Davíð sagði efna­hags­stjórn rík­is­stjórn­ar­innar hafa valdið miklum von­brigðum. Atvinnu­leysi væri að aukast og verð­bólga enn mikil. Hann sagði aðgerðir hennar hafa gert ástandið verra, einkum skatta­hækk­anir og auknar álögur á almenn­ing.

Hann ræddi einnig brott­hvarf Ingvars Þór­odds­sonar úr Viðreisn. Sig­mundur sagði Ingvar hafa varað við afleið­ingum efna­hags­stefn­unnar en að ekki hefði verið hlustað á hann.

„Nú hefur prinsipp­mað­ur­inn hv. þm. Ingvar Þór­odds­son sagt: Hingað og ekki lengra.“

Sig­mundur spurði hvort rík­is­stjórnin ætl­aði að breyta efna­hags­stefnu sinni, fjár­laga­frum­varp­inu og sam­göngu­á­ætl­un­inni.

„Er ein­hver von til þess að hv. rík­is­stjórn láti af dára­skap sínum við stjórn efna­hags­mála á Íslandi?“

Kristrún sagði fyrri ríkisstjórnir bera ábyrgð

Kristrún Frosta­dóttir hafn­aði því að efna­hags­vand­inn staf­aði fyrst og fremst af stefnu rík­is­stjórn­ar­innar. Hún benti á að ytri aðstæður hefðu veru­leg áhrif á verð­bólg­una, meðal ann­ars hækk­anir á olíu­verði.

„Um þriðj­ungur verð­bólg­unnar í dag kemur til vegna olíu­verðs­hækk­ana út af ytri áhrifum sem við höfum enga stjórn á.“

For­sæt­is­ráð­herra sagði að rík­is­stjórnin stefndi að því að hafa jafn­vægi í rík­is­fjár­málum í fyrsta sinn í nærri ára­tug. Hún gagn­rýndi fyrri rík­is­stjórnir fyrir að hafa eytt meira en þær fengu í tekjur árum saman. Það hefði valdið rík­is­sjóði miklum vaxta­kostn­aði.

„Við erum að greiða 168 millj­arða kr. á hverju ein­asta ári út af halla­rekstri.“

Kristrún sagði rík­is­stjórn­ina til­búna að taka erf­iðar ákvarð­anir til að draga úr verð­bólgu og vaxta­kostn­aði. Hún sagði að kröfur stjórn­ar­and­stöð­unnar myndu auka útgjöld rík­is­ins. Það myndi gera fjár­hag rík­is­ins verri.

Sigmundur óttast áhrifin á landsbyggðina

Í síð­ari ræðu sinni sagði Sig­mundur Davíð svör for­sæt­is­ráð­herra ekki hafa dregið úr áhyggjum sínum. Hann taldi rík­is­stjórn­ina ætla að halda áfram óbreyttri stefnu þrátt fyrir versn­andi efna­hags­að­stæður og brott­hvarf þing­manns úr stjórn­ar­lið­inu.

„Það mun lík­lega þurfa að ganga það langt að rík­is­stjórnin lendi í minni hluta til að hún nái áttum.“

Hann hafði einnig áhyggjur af því hvaða áhrif stefna rík­is­stjórn­ar­innar hefði á lands­byggð­ina. Þar nefndi hann sér­stak­lega fyr­ir­hug­aðan Blá­skóga­skatt.

Sig­mundur gagn­rýndi að for­sæt­is­ráð­herra hefði oft talað um erf­iðar ákvarð­anir. Hann sagði það ekki rétt­læta stefnu sem hann teldi ranga.

„Ég hef heyrt hæstv. for­sæt­is­ráð­herra tala um erf­iðar ákvarð­anir hérna mán­uðum saman en það hefur ekk­ert vægi, ekk­ert gildi að taka erf­iðar ákvarð­anir ef þær ákvarð­anir eru allar rangar.“

Kristrún ætlar ekki að breyta um stefnu

Kristrún svar­aði gagn­rýn­inni skýrt í síð­ari ræðu sinni. Hún sagði að ekki kæmi til greina að taka upp þá stefnu í efna­hags­málum sem hún taldi stjórn­ar­and­stöð­una vilja.

„Ef spurn­ingin til mín er sú hvort hér eigi að taka upp hag­speki stjórn­ar­and­stöð­unnar sem felur í sér að gera allt fyrir alla, að rýra tekjur, að auka útgjöld, að auka hall­ann, að auka vaxta­út­gjöld, þá er svarið nei.“

Hún sagði rík­is­stjórn­ina ætla að standa við stjórn­ar­sátt­mál­ann og hafna þrýst­ingi um aukin rík­is­út­gjöld og meiri halla­rekstur.

„Það er í hæsta máta óábyrgt að halda áfram þeirri halla­rekstr­ar­stefnu sem var hér stunduð í áraraðir vegna þess að fólk treystir sér ekki til að klára málin.“

For­sæt­is­ráð­herra ítrek­aði að rík­is­stjórnin yrði að hætta að reka rík­is­sjóð með halla, því það yki verð­bólgu. Hún sagði að ekki yrði hvikað frá þeirri stefnu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Brand óskaði eftir auka­teppi og sér­sjampói í fang­els­inu

Fyrrverandi fangelsisstjóri segir flutninginn í C-flokksfangelsi koma sér á óvart. Áhyggjur af öryggi hans eru sagðar hafa haft áhrif á ákvörðunina.
Peningar

Lands­liðs­konur í ný störf

Heimur

Orðrómur um staf­rænan heimsendi 17. nóv­em­ber vekur ótta

Heimur

Svif­vængja­flug­maður lést í hörmu­legu slysi

Innlent

Átti að mæta á lög­reglu­stöð áður en dag­ur­inn var lið­inn

Pólitík

Pólitík

Vill láta lottó ráða hverjir sitja á Alþingi

Björn Leví Gunnarsson vill að kosningakerfið endurspegli betur að þingmenn séu kjörnir sem einstaklingar en ekki fulltrúar flokka.
  • Pólitík

    Ingvar yfir­gefur Viðreisn

  • Pólitík

    „Ísland á ekki að vera þekkt sem sölu­staður vændis“

  • Pólitík

    Inga Sæland hjólar í borg­ar­stjórn

  • Pólitík

    „Ef það má bjóða ein­hverjum bit­urð og kven­fyr­ir­litn­ingu, endi­lega lesið Moggann í dag“

  • Pólitík

    Segir fyr­ir­spurnir Guðlaugs Þórs eðli­legar en hafnar sam­an­burð­inum við Pírata