Þingflokkur Viðreisnar hefur minnkað í annað sinn á rúmum mánuði eftir að Ingvar Þóroddsson tilkynnti í dag að hann hefði sagt sig úr flokknum og gengið til liðs við Sjálfstæðisflokkinn.
Ingvar hefur tilkynnt forseta Alþingis og forystu Viðreisnar um ákvörðun sína. Jafnframt hefur hann lýst því yfir að ríkisstjórnin geti ekki lengur treyst á stuðning hans og að hann muni starfa í stjórnarandstöðu.
Þetta er í annað sinn á skömmum tíma sem þingmaður yfirgefur þingflokk Viðreisnar. Jón Gnarr sagði sig úr þingflokknum 15. október en lýsti jafnframt yfir áframhaldandi stuðningi við ríkisstjórnina.
Ingvar segir ákvörðunina hafa verið erfiða og tekna eftir langa íhugun. Hann telur stefnu ríkisstjórnarinnar ekki lengur samræmast eigin sannfæringu.
Hann gagnrýnir sérstaklega fyrirhugaðar skattahækkanir og telur ríkisstjórnina þurfa að sýna meiri árangur í aðhaldi og hagræðingu ríkisrekstrar áður en frekari álögur verði lagðar á almenning og fyrirtæki í landinu.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



























Athugasemdir