Ámundi Loftsson, fyrrverandi sjómaður og bóndi, segir sóðaskap í sundlaugum landsins hafa aukist verulega á undanförnum tveimur árum. Hann gagnrýnir sérstaklega unga karlmenn sem fara í sund með nærbuxur undir sundskýlum og þvo sér ekki með fullnægjandi hætti áður en þeir fara ofan í laugarnar.
Þetta kemur fram í aðsendri grein Ámunda á Vísi þar sem hann kallar eftir auknu eftirliti með hreinlæti sundlaugagesta.
Ámundi skrifaði grein um sama málefni fyrir tveimur árum en segir ástandið nú orðið enn verra. Hann lýsir því hvernig hópar ungra manna komi í sturtur sundstaða, bleyti sig rétt lítillega og haldi síðan beint út í sundlaug eða heitan pott.
„Þetta gerist nánast án undantekninga í hvert skipti sem ég fer í laugina í mínum heimabæ, Kópavogi og nú er svo komið að ég er hættur að fara í heita pottinn. Mig bara langar ekki í saurgerlabað,“ skrifar Ámundi.
Hann telur háttsemina bæði óþrifnað og tillitsleysi gagnvart öðrum sundlaugagestum og hvetur rekstraraðila sundstaða til að herða eftirlit. Þá leggur hann til að hreinlætisreglur verði gerðar sýnilegri og birtar á fleiri tungumálum.
Mannlíf hefur áður fjallað um vandann
Mannlíf hefur á undanförnum árum ítrekað fjallað um notkun nærbuxna undir sundfatnaði og þau hreinlætisvandamál sem henni fylgja.
Árið 2024 greindi Mannlíf frá því að Reykjavíkurborg hefði ákveðið að setja upp stór skilti í búningsklefum sundlauga borgarinnar til að minna gesti á að óheimilt væri að fara í nærbuxum í sturtur og sundlaugar.
Árið áður ræddi Mannlíf við Árna Jónsson, þáverandi forstöðumann Laugardalslaugar, sem sagði skítugar nærbuxur vera viðvarandi vandamál í sundlaugum höfuðborgarsvæðisins.
„Þetta er menning hjá ungum drengjum,“ sagði Árni í viðtalinu og bætti við að um væri að ræða drengi og unga menn á aldrinum 14 til 27 ára.
Hann sagði jafnframt að sumir héldu því fram að nærbuxurnar væru hreinar en það breytti ekki þeirri staðreynd að nærbuxur væru ekki viðurkenndur sundfatnaður.
Árni hafði einnig áhyggjur af áhrifum þessa á vatnsgæði sundlauganna.
„Ég hef verið að taka stöðuna á gæðum vatnsins. Það er alveg heilnæmt, ennþá, vatnið en þetta hefur mjög slæm áhrif, mjög hratt, á heilnæmi vatnsins,“ sagði hann.
Ámundi segir ljóst að frekari aðgerða sé þörf og telur meðal annars að kennarar og starfsfólk íþróttafélaga geti lagt sitt af mörkum með því að ræða hreinlæti við börn og ungmenni.
Hann lýkur grein sinni með því að minna á mikilvægi íslenskrar sundmenningar.
„Við Íslendingar megum vera stoltir af rótgróinni sundstaðamenningu okkar. Látum hana ekki verða sóðaskap að bráð. Vilji er allt sem þarf.“
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir