Tho Huu Ho hefur verið dæmdur í fimm mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyrir að flytja tæplega tólf kíló af maríhúana til Íslands. Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjaness í gær.
Maðurinn kom til landsins 13. september síðastliðinn með flugi frá Denver í Bandaríkjunum. Fíkniefnin, samtals 11.720 grömm, voru falin í farangurstösku hans og ætluð til söludreifingar.
Maðurinn játaði brot sitt fyrir dómi
Við ákvörðun refsingar var meðal annars horft til þess að ekkert benti til þess að maðurinn hefði áður gerst sekur um refsiverða háttsemi. Þá lá ekki fyrir að hann ætti fíkniefnin eða hefði tekið þátt í skipulagningu innflutningsins, heldur samþykkt að flytja þau gegn greiðslu.
Dómurinn taldi hins vegar brotið alvarlegt vegna hins mikla magns fíkniefna.
Maðurinn hefur sætt gæsluvarðhaldi frá handtöku og kemur það til frádráttar fangelsisrefsingunni.
Honum var jafnframt gert að greiða rúmlega 1,1 milljón króna í sakarkostnað.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir