Bandaríski leikarinn og uppistandarinn Anthony Clark, sem þekktastur var fyrir hlutverk sitt í gamanþáttunum Yes, Dear, lést af völdum fylgikvilla lungnabólgu. Hann var 62 ára gamall.
Clark lést á þriðjudag, 10. nóvember. Þetta kemur fram í frétt TMZ, sem vísar til fréttamiðilsins Deadline.
Clark lék Greg Warner í gamanþáttunum Yes, Dear, sem sýndir voru á CBS-sjónvarpsstöðinni á árunum 2000 til 2006. Þættirnir nutu vinsælda og voru sýndir í sex þáttaraðir, alls 122 þætti.
Fyrrverandi samstarfsmaður hans í þáttunum, leikarinn Mike O'Malley, greindi frá andláti hans á samfélagsmiðlinum X á miðvikudag.
O'Malley minntist Clark sem einstaklega fyndins manns og sagði hann hafa verið áberandi í uppistandssenunni í Boston um miðjan tíunda áratuginn, þar sem hann fyllti reglulega sýningarsali.
„Hann var svo sérstakur, einn af þessum grínistum sem hló með áhorfendum að fáránleikanum í eigin sögum og athugunum,“ skrifaði O'Malley. Hann bætti við að þeir hefðu rætt saman í síma aðeins þremur vikum áður en Clark lést og að vinur hans hefði enn einu sinni fengið þau hjón til að hlæja dátt.
Clark lék einnig í sjónvarpsþáttunum Boston Common og Soul Man, auk þess sem hann fór með hlutverk í kvikmyndunum The Rock og Dogfight. Hann var jafnframt þáttastjórnandi fjórðu þáttaraðar raunveruleikaþáttanna Last Comic Standing.
Hann hóf feril sinn sem uppistandari og varð þekktur í grínklúbbum Los Angeles á tíunda áratugnum áður en hann sló í gegn í sjónvarpi.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir